„Ég elska að vera hér“ Smári Jökull Jónsson skrifar 20. ágúst 2026 20:00 Guðlaug Erlendsdóttir er skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur og þau Hjálmar Logi, Mía Daðey og Pétur Marinó ætla öll að stunda nám í sínum heimabæ í vetur. Vísir/Lýður Valberg Skólastarf hefst á ný í Grindavík í næstu viku eftir tæplega þriggja ára hlé. Skólastjóri segir að fámennur nemendahópur geri starfsfólki kleift að ná enn betur utan um börnin sem rík þörf sé á. Og krakkarnir eru hæstánægðir með að vera komnir til baka.
Síðan Grindavíkurbær var rýmdur þann 10. nóvember 2023 hefur ekkert skólastarf verið í bænum. Nú er hins vegar búið að hefja leikskólastarf á ný og grunnskólinn verður settur á þriðjudag. „Það var mjög góð tilfinning að koma aftur inn í húsið, ég kom hérna í sumar og þá hafði ég ekki komið hingað í tvö ár að verða,“ segir Guðlaug Erlendsdóttir skólstjóri Grunnskóla Grindavíkur. Guðlaug segir það hafa verið góða tilfinningu að koma inn í skólann á nýjan leik.Vísir/Lýður Valberg „Það var rosalega gott að koma hérna inn og skoða stofurnar. Þegar starfsmenn komu hingað til vinnu á mánudag, það var dásamlegt,“ segir Guðlaug Erlendsdóttir skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur. Töluverðar skemmdir urðu á húsnæðinu í jarðhræringunum en umfangsmiklar framkvæmdir og lagfæringar hafa verið unnar síðustu mánuði. Töluverðar skemmdir urðu á skólahúsnæðinu í jarðhræringunum.Grindavíkurbær „Ég held að skólahúsnæðið hafi aldrei verið í svona góðu standi, það var náttúrulega sérstaklega tekið út bæði hér á Ásabrautinni og eins á leikskólanum,“ segir Guðlaug og bætir við að burðarvirki hússins hafi verið styrkt og þá hafi verið farið í sérstaka vinnu við að bæta loftgæði innanhúss. Tækifæri í fámenninu Tæplega 600 börn stunduðu nám í Grindavík þegar bærinn var rýmdur en í vetur er gert ráð fyrir að nemendur verði rúmlega tuttugu. Leikskólastarf hófst í bænum þann 10. ágúst og þar eru fjórtán börn skráð. Leikskólinn Laut opnaði þann 10. ágúst og þessi börn voru þar að leik þegar fréttastofu bar að garði í morgun.Vísir/Lýður Valberg Að sögn skólastjóra felast þó tækifæri í fámenninu. „Við náum svo vel utan um þau öll. Kennararnir voru langflestir að kenna hér fyrir, upplifðu rýminguna og vita því hvað börnin gengu í gegnum.“ Guðlaug segir rannsóknir hafa sýnt að andleg heilsa grindvískra barna sé lakari en almennt. „Það var náttúrulega óvissa í flutningum, það varð rof í félagslegum tengslum. sum börn fluttu í nokkra skóla, ekki bara einn, og upplifuð mörg hver félagslega einangrun. Fyrir þau er skólinn okkar dýrmæt tækifæri að efla félagslegu tengslin, þau eru að koma aftur í ræturnar sínar. Ég held að þetta sé bara af hinu góða.“ Ekki smeyk við eldgos Sex kennarar auk skólastjóra munu starfa við skólann og nemendurnir dreifast á yngsta stig, miðstig og elsta stig og í nánast alla árganga. Og krakkarnir eru ánægðir að vera komnir til baka. „Þetta er bara besti skólinn, allir kennararnir eru svo góðir og líka umhverfið og þessi bær. Allt saman við þennan bæ og skóla, ég elska að vera hér,“ segir Hjálmar Logi Björnsson sem ætlar að stunda nám við Grindavík í vetur. Hjálmar Logi Björnsson vill hvergi annars staðar vera en í Grindavík.Vísir Systkinin Mía Daðey Magnusdóttir og Pétur Marinó Magnusson hafa búið í San Diego síðustu ár og því töluverð viðbrigði að mæta þaðan í skólann í Grindavík. Mía Daðey var í skólanum í 1. bekk en þau eru ekki mikið að kippa sér upp við það að gosið gæti á ný við bæinn. Mía Daðey og Pétur Marinó eru komin til Grindavíkur eftir að hafa verið í skóla í San Diego síðustu ár.Vísir „Ég er alveg örugg útaf varnargörðunum,“ segir Mía Daðey. „Ég er ekki svo hræddur, bara smá,“ bætir Pétur Marinó við.
Grindavík Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Eldgos og jarðhræringar Grunnskólar Leikskólar Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira