Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Árni Sæberg skrifar 20. júlí 2026 12:19 Flogið verður með flugvél Norlandair. Vísir/Viktor Bandaríkjamaðurinn John Beattie stendur fyrir sérstakri flugferð þann 12. ágúst næstkomandi, þar sem farþegar munu upplifa lengst mögulega almyrkva í heiminum. Sætið kostar allt að 630 þúsund krónur.
Þetta kemur fram í umfjöllun á vefnum Sólmyrkvi 2026, sem Sævar Helgi Bragason heldur út. Þar segir að það að upplifa almyrkva úr flugvél sé gerólíkt því að upplifa myrkva af jörðu niðri. Sé flogið meðfram almyrkvaslóðinni sé myrkvinn hægari og vari lengur. Tvær mínútur og fjörutíu sekúndur Þau níu sem verði um borð í fluginu Umbracept 2026 muni upplifa lengsta almyrkva í heiminum í næstum 2 mínútur og 40 sekúndur. Til samanburðar vari almyrkvinn í Reykjavík í 1 mínútu eða svo, fjörutíu sekúndum lengur frá Keflavíkurflugvelli og mest 2 mínútur og 13 sekúndur við Látrabjarg á Vestfjörðum, sem sé lengsti mögulegi almyrkvi á landi á Jörðinni. Þá hafi flugferð líka ýmsa aðra kosti í för með sér. „Ef þungbúið er við flugtak er fátt betra en að svífa upp í gegnum skýin. Við fljúgum upp í dimmbláan og heiðan himinn og njótum einstaks útsýnis í gegnum gluggann úr 30 þúsund feta hæð eða meira,“ er haft eftir Beattie. Tvö sæti í boði Þá segir að Sólmyrkvi 2026 eigi tvö sæti um borð í vélinni. „Hefurðu áhuga á að fljúga með? Sætin eru ekki ódýr og kosta annars vegar 3000 dollara og hins vegar 5250 dollar. Hafðu samband ef þú hefur áhuga á algerlega einstakri upplifun.“ Það gerir annars vegar um 380 þúsund krónur og um 660 þúsund krónur hins vegar.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Flug Látrabjarg Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira