Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 13. júlí 2026 22:01 Sigurður Ingi Jóhannsson er fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins. Vísir Óskiljanlegt er að netsala áfengis þenjist út eftir að fallinn er dómur um að hún sé ólögleg. Þetta segir fyrrverandi fjármálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins sem kallar jafnframt eftir því að starfsemin verði stöðvuð strax og að ríkisstjórnin tali skýrt í málinu, sem sé henni til vansa.
Frá árinu 2020 hefur netverslunum með áfengi fjölgað ört á Íslandi en í dag bjóða um tuttugu fyrirtæki áfengi til sölu til einstaklinga. Í apríl féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness um að áfengissala eins þessara fyrirtækja, eða Smáríkisins, væri smásala og brot á einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi. Sigurður Ingi, þingmaður Framsóknarflokksins, sendi árið 2024, þegar hann var fjármálaráðherra, lögfræðilegt álit á lögregluna á höfuðborgarsvæðinu vegna netsölu áfengis. Þar kom fram að yfirbragð starfseminnar benti á margan hátt til þess að hún væri ólögleg. „Það sem ég skil ekki núna, þegar það er fallinn dómur, er að þessi starfsemi skuli í raun og veru stækka og víkka í stað þess að lögreglan stígi inn í og stoppi hana. Og að ríkisstjórnin, það er bara henni til vansa hvernig hún einhvern veginn talar þannig væntanlega til löggæslunnar og annarra um að þetta skipti ekki máli. Mér finnst það óskiljanlegt.“ Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sagði í fréttum okkar fyrir helgi að til skoðunar væri hvað ætti að gera í ljósi dómsins. Málið væri hins vegar umfangsmikið og varpaði hún fram spurningunni um vilja löggjafans. „Mér finnst eðlilegt að ríkisstjórnin sé skýr í sínum málflutningi, dómsmálaráðherrann, forsætisráðherrann, fjármálaráðherrann, að þetta fólk sé skýrt í sínum málflutningi. Mér finnst það nokkuð augljóst að einhver skilaboð og stefna einstakra þingmanna Viðreisnar ráði ríkjum í þessari ríkisstjórn hvað þetta mál varðar og það er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur til vansa.“ Hann kallar eftir því að starfsemi netverslana með áfengi verði stöðvuð strax. „Við ætlumst til að við búum í ríki þar sem farið er eftir lögunum og lögreglan fylgir því eftir. Hvort sem menn stela trjám eða setja upp hérna vínbúðir út um allt land eða taka upp á því að keyra yfir á rauðu ljósi þá á að stoppa þá. Það er löggæsla til þess. Löggjafinn á hins vegar að setja línurnar. Ef við viljum breyta áfengisútsölunni þá er það löggjafinn, þá er það pólitík. Það þarf að taka stefnumörkun, en ekki bara leyfa frekjukallinum að vaða uppi án þess að hann sé stoppaður.“
Áfengi Alþingi Netverslun með áfengi Lögreglumál Lögreglan Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira