Flugstjórinn þögull sem gröfin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. apríl 2026 11:40 Hávaðinn var mikill þegar farþegaþota Icelandair flaug í lágflugi yfir Vestmannaeyjum. Ljóst er að vélin fór mun lægra en þau þúsund fet, þrjú hundruð metra, sem er lágmarkshæð yfir þéttbýli. Vísir Ólafur Bragason flugstjóri, sem lauk ferli sínum sem flugstjóri hjá Icelandair með lágflugi yfir Vestmannaeyjum á laugardaginn, ætlar ekkert að tjá sig um flugið að svo stöddu. Málið er litið alvarlegum augum hjá Icelandair sem hefur tilkynnt málið til lögreglu.
Um var að ræða Boeing 757-þotu á leið frá Frankfurt til Íslands. Ólafur flugstjóri er ættaður frá Eyjum og virðist hafa tekið þá sjálfstæðu ákvörðun að fljúga yfir heimaslóðir sínar í sögulegu lágflugi á leiðinni til Keflavíkurflugvallar. Afstaða flugmannsins til lágflugsins í umræddu flugi liggur ekki fyrir. Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, tjáði Vísi um helgina að Ólafur hefði gert þetta án vitundar eða samþykkis stjórnenda hjá flugfélaginu sem hafi frétt af atvikinu eftir á. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Icelandair tilkynnt málið til lögreglu. Þá hefur það verið í samskiptum við Samgöngustofu vegna málsins. Flugstjórinn óskaði eftir því við Avians, sem veitir flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu yfir Norður-Atlantshafi, að fá að breyta flugleið sinni á leið til lendingar. „Við lækkun fer flugvélin úr stjórnuðu loftrými, vanalega í kringum 3000 fet og er þá komin í óstjórnað loftrými sem þýðir að flugstjórinn tekur sjálfur ákvarðanir um flugið. Varðandi fyrirspurnir vegna laga og reglna um loftrými er vísað á Samgöngustofu,“ sagði í svari Avians til Mbl.is um helgina. Icelandair baðst afsökunar „Við biðjum íbúa Vestmannaeyja velvirðingar ef þeir hafa orðið fyrir ónæði,“ sagði Linda í samtali við Vísi um helgina. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Eyjum ræddi málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún sagði málið ekki það versta sem Eyjamenn hefðu lent í en segja má að Eyjamenn séu ýmsu vanir, allt frá Tyrkjaráni til eldgosa. „Það eru skiptar skoðanir á þessu flugi, eins og nánast öllu, en mér finnst flestir íbúar vera rólegir,“ sagði Íris. Farþegi í fluginu tjáði RÚV um helgina að klappað hefði verið fyrir uppátækinu og á honum að merkja að almenn ánægja hefði verið með uppátækið. Kollegar Ólafs í flugstétt Icelandair eru almennt ekki ánægðir með uppátækið samkvæmt heimildum fréttastofu. Íris bæjarstjóri skaut aðeins á afsökunarbeiðni Icelandair vegna málsins. „Ef þú ert að nota afsökunarbeiðnina svona, hvað ætlarðu að gera ef eitthvað virkilega gerist? Mér fannst þetta aðeins stórt skref,“ segir hún og að það sé vitað mál að flugfélögin hafi sínar reglur og verkferla sem eigi að grípa svona atvik. „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í Vestmannaeyjum, að flugvél hafi flogið yfir, nota bene, með einum af sonum eyjanna,“ segir Íris og að hún þekki fjölskyldu flugstjórans vel. Faðir hans hafi borið ábyrgð á því að flogið hafi verið til Vestmannaeyja um árabil og þeim þyki ofboðslega vænt um þessa fjölskyldu. Fréttastofa hafði samband við Ólaf flugstjóra um helgina og aftur í dag til að leita svara hans á uppátækinu. Hann baðst undan viðtali í bæði skiptin. Hann hefur nú lokið störfum hjá Icelandair vegna aldurs en hann á einmitt 65 ára afmæli í dag.
Icelandair Fréttir af flugi Vestmannaeyjar Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira