Fréttir af flugi

Fréttir af flugi

Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Fréttamynd

Reksturinn batnar en hátt elds­neytis­verð setur Icelandair þröngar skorður

Skýr merki eru um að undirliggjandi rekstur Icelandair sé að styrkjast, meðal annars vegna hærri fargjalda, betri sætanýtingar og umfangsmikilla hagræðingaraðgerða, að mati hlutabréfagreinanda, sem verðmetur félagið talsvert yfir markaðsgengi. Hátt eldsneytisverð, sterkt gengi krónunnar og kjaradeilur við flugstéttir setja rekstrinum hins vegar áfram þröngar skorður.

Innherji

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Rúm­lega hundrað flug­ferðum af­lýst og langar bið­raðir

Alls hefur 135 flugferðum verið aflýst í Noregi í morgun vegna verkfalls flugumferðarstjóra. Óslóarflugvelli var lokað í um fimm klukkustundir í morgun en hefur verið opnaður að nýju. Ætlast er til þess að lokunin muni hafa veruleg áhrif á flugumferð það sem eftir er af degi og eru sagðar langar biðraðir á vellinum.

Erlent
Fréttamynd

Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjara­samninga

Félag íslenskra atvinnuflugmanna lítur kaup Icelandair á 49% hlut í Fly Play Europe Holdco ehf. alvarlegum augum. Samningur um kaupin var gerður 20. ágúst á sama tíma og kjaradeila Icelandair og FÍA er til meðferðar hjá ríkissáttasemjara.

Innlent
Fréttamynd

Hvar eru eig­endur Icelandair?

Íslensku lífeyrissjóðirnir eru saman meðal stærstu eigenda Icelandair. Þeir fara ekki með eigið fé heldur eftirlaunasparnað almennings. Þess vegna finnst mér tímabært að spyrja spurningar sem hefur fengið furðulega litla athygli:

Skoðun
Fréttamynd

Fram­tíðar­sýn Svíans að færa flugið nær fólkinu

Sænski frumkvöðullinn að smíði ES-30 rafmagnsflugvélarinnar, Anders Forslund, forstjóri Heart Aerospace, segir framtíðarsýn fyrirtækisins þá að færa flugið nær fólkinu. Hann vonast til þess að mun hagkvæmari og umhverfisvænni flugsamgöngur með rafknúnum flugvélum verði til þess að endurvekja áætlunarflug til fámennari áfangastaða.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Best að vera ekki með stórar yfir­lýsingar

Ágætis gangur er í kjaraviðræðum flugmanna og Icelandair, að sögn formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Fundað var í húsakynnum ríkissáttasemjara frá mánudegi til fimmtudags.

Innlent
Fréttamynd

Breytingar á fyrsta far­rými

Icelandair kynnir í dag fyrsta skrefið í breytingum á Saga Premium. Í tilkynningu segir að það sé betra farrými fremst í flugvélum félagsins. Nú er þá hægt að velja sér um fimm fargjaldaflokka ætli maður að fljúga með Icelandair.

Neytendur
Fréttamynd

Far­þegum fækkaði milli ára

Farþegum Icelandair fækkaði um tvö prósent milli ára í júlímánuði. Í ár voru fluttir 599 þúsund farþegar en í fyrra, júlí 2025, voru þeir 611 þúsund. Sætanýting var 88 prósent og stendur hún í stað milli ára. Þá var stundvísi 77,1 prósent samkvæmt mælingum félagsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldan með á þriðja kíló af kókaíni

Þrír Kólumbíumenn, sem sætt hafa gæsluvarðhaldi frá 29. júlí, voru gripnir með 2,4 kíló af kókaíni í farangri sínum. Daginn eftir voru tveir Kólumbíumenn til viðbótar teknir með 1,7 kíló af sama fíkniefni á Keflavíkurflugvelli.

Innlent
Fréttamynd

Vilja hefja einn stærsta flug­völl landsins til vegs og virðingar

Náttúruverndarsamtök Austurlands og Landhelgisgæslan heiðruðu Ómar Ragnarsson í dag með dagsferð á Sauðárflugvöll á hálendi Austurlands. Ómar kom flugvellinum á kortið í baráttu sinni fyrir náttúruvernd á Austurlandi og gegn Kárahnjúkavirkjun. Ómar segir brýnt að viðhalda flugbrautum þar og auka vitneskju um völlinn, öryggisins vegna.

Innlent
Fréttamynd

Næturborun í sjó lokið og verk­takar þakka í­búum þolin­mæðina

Síðustu vikur hefur borun staðið yfir að næturlagi í sjónum úti fyrir Kársnesi en henni er nú lokið. Borunin er skref í smíði Fossvogsbrúar sem verður 270 metra löng, allt að sautján metra breið og opnar þann 16. júní árið 2028, ef allt fer eftir áætlun. Staðarstjóri segir framkvæmdina vera hreint út sagt ótrúlega en meðal þeirra sem hafa komið að smíðinni eru atvinnukafarar sem sérhæfa sig í logsuðu neðansjávar.

Innlent
Fréttamynd

Dani lést í þyrluslysinu

Annar tveggja manna sem létust eftir að tvær slökkiliðsþyrlur skullu saman í loftinu í Grikklandi í dag var danskur ríkisborgari. Hinn var heimamaður.

Erlent