Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Lovísa Arnardóttir skrifar 23. september 2026 14:22 Finnbjörn Hermannsson segir ASÍ ítrekað hafa reynt að fá Wolt til þess að gera samninga við sína starfsmenn. Vísir/Vilhelm ASÍ krefst þess að stjórnvöld virði grundvallarréttindi launafólks og skorar á atvinnurekendur að ganga til raunverulegra viðræðna við alla viðsemjendur sína í stað þess að treysta á ólögmætt inngrip Alþingis.
Í yfirlýsingu minnir ASÍ ríkisstjórn og Alþingi á að réttur launafólks til að semja í frjálsum kjarasamningum um kaup og kjör er varinn í Stjórnarskrá Íslands og lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Þetta segir í nýrri yfirlýsingu samtakanna í tengslum við undirbúning lagasetningar á verkfall Flugvirkjafélags Íslands vegna kjaradeilu félagsins við Icelandair. Greint var frá því fyrr í dag að ríkisstjórnin hefði komið saman og samþykkt að setja lög á verkfallið. Áður en af því varð aflýsti Flugvirkjafélag Íslands öllum sínum verkfallsaðgerðum. Í yfirlýsingu ASÍ minnir Alþingi jafnframt á að bæði Alþingi og stjórnvöld séu bundin af samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) nr. 87 um félagafrelsi, verndun þess og verkfallsrétt, samþykkt ILO nr. 98 um réttinn til þess að semja sameiginlega auk þess að vera bundin af 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. „Kjarasamningsrétturinn og rétturinn til þess að beita lögmætum aðgerðum til þess að knýja á um kröfur í kjaradeilu eru þannig meðal helgustu mannréttinda launafólks og frjálsrar verkalýðshreyfingar. Lagasetning sem beinist að lögmætum verkfallsaðgerðum sem ógna hvorki lífi né heilsu er og verður ólögmæt og íslensk stjórnvöld hafa sætt ítrekuðum athugasemdum ILO vegna brota á grundvallarréttindum launafólks í þessu efni,“ segir í yfirlýsingu ASÍ.
Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Flug ASÍ Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira