Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Kristján Már Unnarsson skrifar 6. apríl 2026 15:00 Tryggvi Þráinsson, forstöðumaður þjálfunardeildar Air Atlanta, í Boeing 747-flughermi félagsins í London. Egill Aðalsteinsson Ein minnsta starfsstöð flugfélagsins Air Atlanta er á Heathrow-flugvelli í London, þar sem þjálfun flugmanna fer fram. Þar er félagið með sinn eigin Boeing 747-flughermi. „
Þetta er tækið þar sem við komum og gerum okkar æfingar, reglulegar endurþjálfanir. Þetta er tækið þar sem þú mátt gera mistök,“ segir Tryggvi Þráinsson, forstöðumaður þjálfunardeildar, í átjánda þætti Flugþjóðarinnar um Atlanta-flugfélagið á Sýn+. „Hérna lærum við að gera mistökin því við viljum að þau séu ekki gerð þegar við erum komin í alvöru-vélina. Þannig að þetta er okkar tæki til að gera okkur að betri flugmönnum,“ segir Tryggvi sem jafnframt er flugstjóri. Hér má sjá tveggja mínútna kafla: Flugherminn fyrir Boeing 747 keypti Air Atlanta í ársbyrjun 2021 í miðjum covid-heimsfaraldri af breska flugfélaginu British Airways. Hann er staðsettur á Heathrow-flugvellinum í London í byggingu sem hýsir þjálfunarsetur British Airways. Flughermir Air Atlanta í London.Egill Aðalsteinsson Fyrir utan það að tryggja eigin flugmönnum aðgang að góðri þjálfun þegar hentar fylgdi því mikill sparnaður fyrir Atlanta að eignast sinn eigin flughermi. Jafnframt hefur félagið tekjur af flugherminum með útseldri vinnu því hann er leigður út til annarra flugfélaga og flugmanna. Tryggvi býður gömlum Cessna-flugmanni að setjast undir stýri. Það er ákveðið að hann reyni að taka hana á loft frá Kennedy-flugvelli og fljúgi svo hring í kringum New York-borg. Atriðið má sjá í sextánda þætti Flugþjóðarinnar um júmbó-þotuna: Áskrifendur geta séð alla nítján þætti Flugþjóðarinnar á streymisveitunni Sýn+.
Flugþjóðin Air Atlanta Boeing Fréttir af flugi Tengdar fréttir Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð Í skrifstofubyggingu í Smárahverfi í Kópavogi er stjórnstöð þakin svo mörgum tölvuskjám að minnir á geimferðamiðstöð. Stöðin á það sammerkt með NASA að þar sitja einnig sérfræðingar við skjái að fylgjast með að allt gangi vel í ferðum á fjarlægum slóðum. 2. apríl 2026 07:47 Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Boeing 747-þotan er kölluð drottning himnanna enda var hún stærsta farþegaþota heims um áratugaskeið. Hin goðsagnakennda júmbóþota skipar einnig stærri sess í íslenskri flugsögu en flesta grunar. 5. mars 2026 22:42 Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur Loftleiðir voru við það að kaupa tvær Boeing 747-þotur skömmu fyrir sameiningu flugfélaganna árið 1973. Andstaða eins stjórnarmanna Loftleiða sem og ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hafna ríkisábyrgð gerðu út um júmbó-draum Loftleiðamanna. 8. mars 2026 07:47 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Sjá meira
Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð Í skrifstofubyggingu í Smárahverfi í Kópavogi er stjórnstöð þakin svo mörgum tölvuskjám að minnir á geimferðamiðstöð. Stöðin á það sammerkt með NASA að þar sitja einnig sérfræðingar við skjái að fylgjast með að allt gangi vel í ferðum á fjarlægum slóðum. 2. apríl 2026 07:47
Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Boeing 747-þotan er kölluð drottning himnanna enda var hún stærsta farþegaþota heims um áratugaskeið. Hin goðsagnakennda júmbóþota skipar einnig stærri sess í íslenskri flugsögu en flesta grunar. 5. mars 2026 22:42
Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur Loftleiðir voru við það að kaupa tvær Boeing 747-þotur skömmu fyrir sameiningu flugfélaganna árið 1973. Andstaða eins stjórnarmanna Loftleiða sem og ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hafna ríkisábyrgð gerðu út um júmbó-draum Loftleiðamanna. 8. mars 2026 07:47