Of miklar verðhækkanir á eldsneyti kalli á inngrip stjórnvalda Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 30. mars 2026 13:49 Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB telur að stjórnvöld verði að grípa inn í miklar verðhækkanir á eldsneyti. Til þess séu nokkrar leiðir. Vísir/Sara Framkvæmdastjóri FIB telur eðlilegt að stjórnvöld mæti gríðarlegum hækkunum á olíuverði með því að lækka álögur á eldsneyti tímabundið líkt og aðrar þjóðir hafa gert undanfarið. Fyrir því séu fordæmi í sögunni. Þá þurfi að veita olíufélögunum aukið aðhald.
Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka álögur og skatta á eldsneyti frá og með 1. apríl til september til að létta undir með landsmönnum. Olíuverð er nú í hæstu hæðum vegna stríðsins í Íran og verð á hráolíu er komið yfir 116 dollara á tunnuna. Sænsk, pólsk og spænsk yfirvöld hafa kynnt sambærilegar aðgerðir vegna ástandsins. Miklar verðhækkanir Olíu- og bensíngjöld féllu niður hér á landi þegar kílómetragjöld voru tekin upp um áramótin en kolefnisgjöld hækkuðu á móti. Kolefnisgjald á bensíni er nú ríflega 24 krónur á lítra og 28 á gas og díelsolíu. Þá er virðisaukaskattur 24 prósent. Miklar eldsneytishækkanir hafa verið undanfarið. Þannig kostaði lítrinn af bensíni um 168 krónur hjá Costco í byrjun janúar en var kominn í 204 krónur í gær samkvæmt gasvaktin.is. Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda telur að stjórnvöld þurfi að bregðast við. „Við sjáum að bensín á Íslandi hefur hækkað gríðarlega. Í þessum mánuði hefur það hækkað um rúmar 30 krónur á lítrann hjá Costco, dísel enn meira eða um 49 krónur. Það sér ekki fyrir endann á þessu. Það veit enginn hvað gerist á næstu dögum og vikum. Foringinn í vestri segir eitt að morgni og annað að kveldi. Undir þessum kringumstæðum væri mjög eðlilegt að stjórnvöld gripu inn í tímabundið með lækkun á kolefnisgjöldum á bensíni og díselolíu eða kílómetragjöldum,“ segir Runólfur. Hann segir mikilvægt að bregðast við því ástandið auki verðbólgu hér á landi. „Það er mjög óeðlilegt að hækkun á olíuverði sem má rekja til átaka í Mið-Austurlönum hafi áhrif á stýrivexti á Íslandi,“ segir Runólfur Fordæmi fyrir inngripi Runólfur segir fordæmi fyrir því að álögur séu lækkaðar vegna þróunar á heimsmarkaðasverði. „Stjórnvöld hafa tímabundið gripið inn í svona aðstæður. Þann 27. mars 2002 ákvað ríkisstjórnin t.d. að lækka bensíngjald um 1,55 kr. tímabundið til júníloka. Áætlað var að lækkunin myndi kosta ríkissjóð um 80 m.kr. á þeim tíma. Lækkunin var gerð í því skyni að tryggja áframhaldandi stöðugleika á vinnumarkaði,“ segir Runólfur. Formaður VR sagði fyrir helgi að bregðast þyrfti við ástandinu með því að innleiða einhvers konar verðþak á olíu. Runólfur er á svipuðum nótum. „Við höfum beint því til stjórnvalda að veita þessum markaði aukið aðhald. Við höfum séð að það eru brögð að því að álögur olíufyrirtækjanna hafi hækkað. Þetta sést t.d. í ársreikningum fyrirtækjanna. Ef markaðnum er ekki treystandi til að tryggja neytendum samkeppnishæft verð þarf hugsanlega að koma til einhvers konar verðþaks eins og þeir hafa t.d. í Belgíu,“ segir Runólfur.
Verðlag Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Bensín og olía Neytendur Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira