„Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Kristján Már Unnarsson skrifar 23. mars 2026 22:14 Reynir Gunnarsson er afísingarsérfræðingur hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Egill Aðalsteinsson Afísing flugvéla er einhver þýðingarmesti öryggisþáttur flugsins í vetrarveðrum eins og núna ganga yfir landið. Afísingarsérfræðingur á Keflavíkurflugvelli segir þá sem annast verkið vel meðvitaða um hvað sé í húfi.
Í fréttum Sýnar er fylgst með afísingu Boeing 737-þotu Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Hjá félaginu sinna milli fjörutíu og fimmtíu manns þessu starfi. Í vetrartíð vill gjarnan ís og klaki setjast á flugvélarnar og þá þarf að gera ráðstafanir. Afísingarvökva sprautað á framhluta og framrúður þotunnar.Egill Aðalsteinsson „Flugmenn bera í raun ábyrgð á að biðja um afísingu. Ef þeir sjá eitthvað athugavert, einhvern snjó eða klaka eða eitthvað, þá biðja þeir um afísingu. Við komum svo og skoðum og metum það hvort það þurfi,“ segir Reynir Gunnarsson, afísingarsérfræðingur hjá Icelandair. Þeir nota sérsmíðaða afísingarbíla og afísingarvökvinn er blanda af glýkól sem þeir kalla síróp. Reynir lýsir ferlinu í fréttinni: „Hér er verið að hreinsa og verja flugvélarvæng. Þeir hreinsa allan klaka eða ís eða snjó sem sest á þetta. Svo setja þeir vörn yfir vænginn til þess að passa að það myndist ekki klaki á leiðinni út á brautarenda, sem brotnar svo af í flugtaki.“ Mannskapinn segir hann hljóta þjálfun bæði á bóklegum og verklegum námskeiðum. Vængurinn afísaður.Egill Aðalsteinsson „Þetta eru náttúrulega okkar bestu menn sem eru valdir í þetta verk, sko.“ Reynir segir að venjulega taki tíu til fimmtán mínútur að afísa hverja flugvél en tíminn geti farið upp í fjörutíu mínútur, sem getur þýtt töf á brottför. „Já, já, það kemur fyrir. Þetta er náttúrulega oftast alseinasta verkið sem farið er í.“ Á dögum sem þessum afísa þeir milli fjörutíu og fimmtíu flugvélar á dag. Afísingarmennirnir kanna hvort vænglingar Boeing 737-þotu Icelandair séu lausir við ís.Egill Aðalsteinsson -Það er ansi mikið í húfi ef afísingin klikkar. Hugsið þið þetta stundum þannig? „Já, já, það er alveg þannig. Við bara berjum þetta svoleiðis í okkar menn að við þurfum alltaf að hafa hugann við það. Því að þetta er aðalöryggisatriðið náttúrulega á veturna,“ segir Reynir Gunnarsson, afísingarsérfræðingur hjá Icelandair. Fjallað er um fjölþætta starfsemi á Keflavíkurflugvelli í nítjánda þætti Flugþjóðarinnar á streymisveitunni Sýn+. Þar geta áskrifendur séð alla þættina í heild sinni. Dæmi um efni þriðju seríu Flugþjóðarinnar má sjá í kynningarstiklu:
Flugþjóðin Keflavíkurflugvöllur Icelandair Veður Fréttir af flugi Tengdar fréttir Farþegar bíða í vélunum meðan unnið er að afísingu Fólk á leið til og úr landi má búast við seinkunum á flugi í dag. Töluverðar seinkanir urðu á flugi í morgun frá Keflavíkurflugvelli vegna veðurs. Gul viðvörun er í gildi á Suður- og Suðvesturhluta landsins til hádegis og mikil snjókoma. 18. janúar 2024 11:00 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira
Farþegar bíða í vélunum meðan unnið er að afísingu Fólk á leið til og úr landi má búast við seinkunum á flugi í dag. Töluverðar seinkanir urðu á flugi í morgun frá Keflavíkurflugvelli vegna veðurs. Gul viðvörun er í gildi á Suður- og Suðvesturhluta landsins til hádegis og mikil snjókoma. 18. janúar 2024 11:00