„Nú hafi orðið bakslag“ Birgir Olgeirsson skrifar 18. mars 2026 15:50 Kristrún Frostadóttir er forsætisráðherra. Vísir/Vilhelm Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það vond tíðindi að Seðlabankinn hafi séð sig knúinn til að hækka stýrivexti á ný, þótt þeir séu enn talsvert lægri en haustið 2024. Hún segir ljóst að verðbólguvæntingar þurfi að slá niður og að ríkisstjórnin muni ekki hvika frá áætlun um að reka ríkissjóð réttum megin við núllið.
Í skrifum sínum viðurkennir Kristrún að stjórnvöld hafi verið vongóð eftir lægstu verðbólgumælingu í fimm ár síðasta haust og lækkun stýrivaxta, en að þau hafi mögulega fagnað of snemma. „Þróunin hefur verið í rétta átt. Það er staðreynd – þó að nú hafi orðið bakslag,“ segir Kristrún sem bætir við að ríkisstjórnin taki ábyrgð á stöðunni og muni herða sig enn frekar. Forsætisráðherra segir hækkanirnar sem nú blasi við vera á breiðum grunni og að því þurfi allir armar hagstjórnarinnar að vinna saman. Hún bendir á að kjarasamningar séu í gildi sem setji launaþróun skorður og að ríkisstjórnin muni leggja sitt af mörkum í fjármálaáætlun og með því sem hún kallar fyrstu hallalausu fjárlögin í nærri áratug. Þá segir hún stjórnvöld jafnframt vera að klára Airbnb-málið á Alþingi og önnur úrræði sem eigi að draga úr þenslu á húsnæðismarkaði. Einnig sé unnið að fyrstu atvinnustefnu Íslands sem verði kynnt á næstu vikum. Kristrún segir jafnframt að fyrirtæki beri ábyrgð á stöðunni og verði að halda aftur af álagningu til að styðja við efnahagslegan stöðugleika. Að hennar sögn er ekki í boði að missa sjónar á verkefninu. Hún segist trúa því að takast megi að vinda ofan af bakslaginu og skapa betra jafnvægi í íslensku efnahagslífi til lengri tíma.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Seðlabankinn Kjaramál Efnahagsmál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira