Seðlabankinn

Fréttamynd

Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin

Mjög erfitt er að halda verð- og gjaldskrárhækkunum innan verðbólgumarkmiðs þegar laun hækka meira, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann fagnar þó viðleitni opinberra aðila til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og telur ávinninginn geta skilað sér í lægri vaxtakostnaði.

Innlent
Fréttamynd

Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin

Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu.

Innlent
Fréttamynd

Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf

Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé.

Innlent
Fréttamynd

Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“

Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra.

Innlent
Fréttamynd

Ó­breyttur tónn bankans og vonir um frið á vinnu­markaði lækkar markaðs­vexti

Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda vöxtum óbreyttum, stutt af öllum nefndarmönnum, var viðbúin og engar breytingar voru gerðar á framsýnni leiðsögn hennar. Skömmu áður hafði náðst samkomulag hjá stórum hluta launþegahreyfingarinnar við SA um að slíta ekki kjarasamningum og hafa skuldabréfafjárfestar tekið vel í þær fréttir og markaðsvextir óverðtryggðra ríkisbréfa lækkað.

Innherji
Fréttamynd

Uggandi yfir af­stöðu VR

Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stýrivextir á­fram átta prósent

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mældist 5,9 prósent í september. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Halda 25 pró­senta bónusþaki þrátt fyrir mun rýmri reglur á Norður­löndum

Stjórnvöld hafa fallið frá fyrri áformum um að tvöfalda hámark breytilegra launa hjá verðbréfafyrirtækjum og leggja þess í stað til að 25 prósenta þak verði áfram við lýði hjá þeim félögum sem falla undir strangari kröfur. Takmörkunin verður því enn mun meiri en þekkist annars staðar á Norðurlöndum, þótt samhliða sé lagt til að regluverk íslenskra verðbréfafyrirtækja verði almennt einfaldað verulega og reglubyrði þeirra minnkuð.

Innherji
Fréttamynd

Vaxandi verðbólguáhyggjur en vaxta­hækkun kæmi „nokkuð á ó­vart“

Þótt verðbólga og verðbólguvæntingar hafi hækkað frá síðustu vaxtaákvörðun og rök séu fyrir því að Seðlabankinn herði taumhaldið enn frekar telja greinendur IFS líklegast að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreytum í næstu viku. Hagkerfið er í hægagangi, raunvextir áfram háir og óvissa á vinnumarkaði mikil, en ekki er útilokað að gripið verði til einnar vaxtahækkunar til viðbótar síðar á árinu.

Innherji
Fréttamynd

Óttast „harða lendingu“ með efna­hags­sam­drætti og veru­legu at­vinnu­leysi

Skýr merki eru komin fram um að hagkerfið sé að kólna mun hraðar en flestar hagspár hafa gert ráð fyrir og hætta er á að áfram dragi úr hagvexti á næsta ári samhliða verulega auknu atvinnuleysi, að mati greinenda Acro. Þeir óttast að þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar komi í veg fyrir að Seðlabankinn geti brugðist við versnandi efnahagsástandi með vaxtalækkunum og að niðurstaðan verði „hörð lending“.

Innherji
Fréttamynd

Spá ó­breyttum vöxtum

Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga hefur ekki mælst meiri í tvö ár.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020

Hlutabréfavelta í Kauphöllinni var sú minnsta í sex ár í ágúst og nam 29 milljörðum króna. Í ágúst 2020, á fyrsta ári faraldursins, var hún 28,8 milljarðar. Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir háa vexti helstu skýringuna á lítilli veltu nú.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Markaðurinn van­metið gjald­eyris­inn­flæðið af upp­byggingu gagna­vera

Peningastefnan er að hjálpa við að draga úr vexti einkaneyslu og fjárfestingu, sem veldur minni innflutningi á sama tíma viðskiptakjör útflutningsgreina eru góð, en það hefur ýtt undir mikla gengisstyrkingu á krónunni og þá er líklegt að markaðurinn hafi vanmetið gjaldeyrisáhrifin af stórfelldri uppbyggingu gagnavera, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur bankakerfið hafa búið vel í haginn til að takast á við óróleika á erlendum mörkuðum og það fyrirfinnist vart fyrirtæki sem er mjög skuldsett í erlendri mynt og gæti lent í vandræðum vegna endurfjármögnunar í útlöndum.

Innherji
Fréttamynd

Mælist til að bankarnir „safni eigin fé“ og séu um­fram kröfur Seðla­bankans

Núna þegar það kann að reyna á viðnámsþrótt fjármálakerfisins, meðal annars vega óróleika á alþjóðlegum mörkuðum og erfiðrar stöðu á byggingamarkaði, þá er ástæða fyrir viðskiptabankana að huga að því að „safna eigin fé“ og vera tilbúna til að takast á við möguleg áföll, að sögn seðlabankastjóra. Arðgreiðslur og kaup bankanna á eigin bréfum hafa verið með mesta móti að undanförnu og nema samtals yfir hundrað milljörðum frá áramótum.

Innherji
Fréttamynd

Kólnandi hag­kerfi og háir vextir gætu reynt á við­náms­þrótt fjár­mála­kerfisins

Óróleiki í alþjóðlegu efnahagslífi og hátt vaxtastig hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum gæti „reynt á viðnámsþrótt“ fjármálakerfisins, að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún beinir sem fyrr einnig sjónum sínum að stöðunni á húsnæðismarkaði, sem einkennist af raunverðslækkunum og lengri sölutíma eigna, og segir þá þróun geta reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil.

Innherji
Fréttamynd

Skýr merki um kólnandi vinnu­markað og hægari um­svif

Skýr merki eru um kólnandi vinnumarkað og hægari efnahagsumsvif samhliða háum vöxtum, að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Alþjóðlegur óróleiki, viðvarandi verðbólga og háir vextir hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum segir hún geta reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Aukinn launa­kostnaður gæti kallað á enn frekara að­hald Seðla­bankans

Þrátt fyrir vaxandi merki um kólnun í hagkerfinu, meðal annars á fasteignamarkaði, er útlit fyrir þráláta verðbólgu á komandi mánuðum og er þróunin á vinnumarkaði sögð geta ráðið miklu um hvort peningastefnunefnd Seðlabankans sjái ástæðu til frekara aðhalds. Spár flestra greinenda gera ráð fyrir að tólf mánaða verðbólgan hækki í nærri sex prósent í lok þessa mánaðar.

Innherjamolar
Fréttamynd

Taki stöðuna al­var­lega og hækki ekki verð um­fram verðbólgumarkmið

Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs, Kjarnavara og fleiri vörumerkja, hefur heitið því að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Er skrefið stigið í von um að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld grípi til eigin aðgerða gegn verðbólgunni.

Neytendur
Fréttamynd

Sam­einumst um 2,5 prósent mark­mið Seðla­bankans

Umræðan um verðbólgu og hátt vaxtastig hefur ekki farið framhjá neinum undanfarnar vikur og mánuði. Þetta er í raun óboðleg staða fyrir bæði fólk og fyrirtæki og við viljum öll sjá trúverðugar aðgerðir stjórnvalda til að vinda ofan af ástandinu og vinna að raunverulegum árangri.

Skoðun
Fréttamynd

Á­hersla ESB á mið­stýringu er „við­varandi á­skorun“ fyrir EES-samninginn

Aukin miðstýring innan Evrópusambandsins, sem meðal annars er ætlað að efla samkeppnishæfni álfunnar, gæti skapað hættu á „viðvarandi áskorunum“ fyrir EES-samninginn og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu, að mati varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Hann segir breytta heimsmynd kalla á að Ísland leiti sér alþjóðlegs skjóls en styrki um leið eigin viðnámsþrótt.

Innherji
Fréttamynd

Seðla­bankar styðjast við fleiri mæli­kvarða en skila­boðin verða ó­skýrari

Seðlabankar víða um heim hafa í auknum mæli horfið frá því að horfa til eins tiltekins mælikvarða á undirliggjandi verðbólgu og styðjast þess í stað við safn ólíkra mælikvarða. Þótt það kunni að gefa betri mynd af verðbólguþrýstingi í hagkerfinu er hætta á því, samkvæmt nýrri greiningu, að skilaboðin verði óskýr og almenningur eigi erfiðara með að átta sig á hvaða mælikvarðar ráða mestu við vaxtaákvarðanir.

Innherji
Fréttamynd

Sendir röng skila­boð og hreyfir við verðbólgu­væntingum á brot­hættum stað

Afleiðingarnar af því að boða hækkun á gjöldum ríkisins í samræmi við verðbólgu, sem hefur verið gert í síðustu tveimur fjárlagafrumvörpum, verða til þess að hreyfa við verðbólguvæntingum sem eru fyrir á „brothættum stað“, að sögn varaseðlabankastjóra, og að Seðlabankinn myndi gjarnan vilja sjá þetta endurhugsað. Hann segir jákvætt að aðhaldsstigið í ríkisfjármálum eigi að aukast á milli ára og varar við því að fara í meiri launahækkanir á vinnumarkaði, einkum núna þegar það er að myndast „mikill slaki í þjóðarbúinu.“

Innherji