Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Atli Ísleifsson skrifar 24. júní 2025 10:58 Ábending barst til Matvælastofnunar um aðbúnað sauðfjár bóndans í maí 2024. Var bent á girðingar hafi verið í ólagi og kindurnar hafi verið komnar inn á aðra jörð sem almannavarnir höfðu bannað fólki að fara inn á vegna stórrar sprungu. Vísir/Vilhelm Atvinnuvegaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar um að sekta sauðfjárbónda í Grindavík um 240 þúsund krónur fyrir að hafa haldið sauðfé í bænum og brotið gegn reglugerðum um velferð dýra. Kindurnar gengu lausar um sprungusvæði og fóru um tún sem almannavarnir höfðu flokkað hættulegt vegna stórrar sprungu.
Málið má rekja til þess að ábending barst til Matvælastofnunar um aðbúnað sauðfjár bóndans í maí 2024. Var bent á girðingar hafi verið í ólagi og kindurnar hafi verið komnar inn á aðra jörð sem almannavarnir höfðu bannað fólki að fara inn á vegna stórrar sprungu. Sömuleiðis var bent á lömb sem hafi verið föst í girðingunni og enginn hafi þorað að bjarga þeim þar sem túnið hafi verið flokkað sem sprungusvæði. Eitt lambið festist og drapst Eftirlitsmenn á vegum stofnunarinnar fóru þá á vettvang og kom fram í skoðunarskýrslu að þrjú frávik hafi verið skráð og þar af tvö alvarleg. Niðurstaðan var sú að girðingin hafi ekki verið fjárheld þar sem hún byði upp á mikla slysahættu fyrir sauðfé sem væri ítrekað að festast í henni þar sem fiskinet hafi verið notað sem girðingarefni. Því til viðbótar hafi sauðfé komist á svæði þar sem sprungur væru þar sem girðingin hafi ekki fjárheld. Ennfremur segir að vegna notkunar fiskinets hafi eitt lamb fests og drepist, auk þess að björgunarsveitarmenn hafi þurft bjargað tveimur. Eftirlitið fór í kjölfarið fram á að bóndinn myndi flytja sauðfé sitt brott úr Grindavík. Þrátt fyrir skýrsluna, símtal og bréf segir í úrskurði ráðuneytisins að bóndinn hafi ekki farið að fyrirmælum um að flytja dýrin brott úr bænum. Þrátt fyrir að engar sprungur hafi verið á túnum kæranda þar sem kindur hans voru á beit þá hafi verið ljóst af gögnum málsins að kindurnar hafi farið á önnur tún sem hafi verið með sprungum. Bóndinn hafi þannig ekki verndað kindur sínar frá þeirri hættu að falla niður í sprungur á nærliggjandi túnum og var ákveðið að leggja á bóndann 240 þúsund króna stjórnvaldssekt. Fjöldi nýrra sprunga hafa myndast í og við Grindavík í tengslum við eldsumbrotin síðustu ár. Vísir/Vilhelm Sagðist hafa neyðst til að flytja sauðféð til Grindavíkur Við meðferð málsins sagði bóndinn að hann hafi neyðst til þess að flytja dýrin til Grindavíkur á þessum tíma þar sem hann hefði fengið húsaskjól fyrir sauðfé í Reykjavík í takmarkaðan tíma og hafi, á þessum tímapunkti, orðið að losa það húsnæði enda væri sauðburður búinn. Síðar hafi kærandi fengið húsnæði fyrir sauðfé sitt þar til það var rekið á fjall. Til þess að brúa bilið hafði hann hins vegar neyðst til að flytja sauðféð til Grindavíkur á „tún sem var sprungulaust“. Þá sagði bóndinn að ákvörðun hans um að girða landið af með fiskinetum sem hafi haft of stóra möskva mætti rekja til vanþekkingar hans. Hann bæðist afsökunar á því og benti á að hann hefði lagað girðinguna eftir að ábendingar bárust. „Kærandi áréttaði að honum hafi þótt það mjög leitt að eitt lamb hans hefði drepist þar sem það hengdist í netinu en tveimur hafi verið bjargað,“ segir í úrskurðinum. Bóndinn vísaði einnig til þess að í skoðunarskýrslu Matvælastofnunar hafi komi fram að tvær kindur hafi verið utan girðingar við eftirlit. Sagði hann þó ekki ljóst hver væri eigendi umræddra kinda – það væri hins vegar ekki hann og því bæri hann ekki ábyrgð á þeim. Hann hafi um fjörutíu ára skeið og við erfiðar aðstæður reynt að hugsa vel um sauðfé sitt. Bóndinn vildi meina að óhjákvæmilegt væri að ógilda ákvörðunina vegna alvarlegra ágalla, en til vara óskaði hann eftir því að MAST myndi taka málið upp að nýju og lækka stjórnvaldssektina. Sektarupphæðin væri of há með tilliti til alvarleika ágreiningsatriða. Heimilt að sekta manninn Ráðuneytið mat það sem svo að bóndinn hafi sannarlega brotið gegn lögum um velferð dýra og því að hafi Matvælastofnun verið heimilt að leggja stjórnvaldssekt á bóndann. Ekki yrði annað ráðið en að sektarfjárhæðin hafi verið ákveðin í samræmi við þær verklagsreglur sem stofnunin fylgi í stjórnvaldssektarmálum. Því hafi ráðuneytið ekki talið ástæðu til að gera athugasemdir við sektarfjárhæð.
Grindavík Sauðfé Landbúnaður Eldgos á Reykjanesskaga Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira