Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu. 7.10.2026 12:09
Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun. Formaður VR segir samtalið efnismeira en áður þó að enn sé talsverð gjá á milli og hætta á að samningar falli. Ögurstund er í kjaramálum. 6.10.2026 12:11
SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og Fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. 5.10.2026 13:34
Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Fjármálaráðherra segir það valda áhyggjum hvað virðing og traust til Alþingis Íslendinga sé lítið. Gera þurfi breytingar á þingsköpum en passa upp á minnihlutaverndina. 4.10.2026 14:49
„Okkur finnst við vera undanskilin“ Sú staðreynd að Austurland leggi meira til ríkissjóðs en það fær til baka sýnir með skýrum hætti hversu mikilvægt atvinnulíf og verðmætasköpun á svæðinu er. Því þurfi ríkið að fjárfesta í þeim innviðum sem gera fólki og fyrirtækjum kleift að búa og starfa á svæðinu. Þetta segir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. 3.10.2026 15:55
Geri málið tortryggilegt að neita að svara Almannatengill og ráðgjafi segir framkomu formanns Flokks fólksins í umdeildu fréttamáli óvenjulega. Það geri málið tortryggilegt að neita að svara fréttamönnum auk þess sem það sé vanvirðing við fjölmiðla og þjóðina að segjast ekki hafa tíma til að ræða stórt fréttamál á sama tíma og formaðurinn veiti ítarlegt viðtal um tísku. 2.10.2026 13:00
Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, neitaði að svara spurningum fréttamanns þegar hún var spurð út í mál Guðmundar Inga Kristinssonar. Hún sagðist þó ekki hafa komið nálægt umdeildum skilaboðum sem fyrrverandi aðstoðarkona Guðmundar Inga sendi á hann. 1.10.2026 15:05
„Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Formaður Starfsgreinasambandsins furðar sig á þeim orðum fjármálaráðherra að launafólk hafi það ekki verra nú en áður og að heimilin standi vel. Einn aðili hafi skilað auðu í því verkefni að láta kjarasamninga halda og það sé ríkið. 30.9.2026 13:02
„Ég er ógeðslega reiður“ Formaður stéttarfélagsins Framsýnar segist „ógeðslega reiður“ og fúll vegna ummæla fjármálaráðherra. Reynslu- og sambandsleysi einkenni ríkisstjórnina og ljóst að lægst launaða fólkið í landinu þoli ekki efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar. 30.9.2026 08:59
Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu sjónvarpsviðtali við fréttastofu. 30.9.2026 06:46