Íslenski boltinn

„Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða ein­hver annar“

Andri Broddason skrifar
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var markahæsti leikmaður tímabilsins í Bestu deild kvenna.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var markahæsti leikmaður tímabilsins í Bestu deild kvenna. Anton/Vísir

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var markahæsti leikmaður Bestu deildar kvenna í sumar. Hún gulltryggði þann titil í lokaumferðinni gegn FH þar sem hún skoraði fimm mörk.

Eftir frábæra byrjun á tímabilinu hægðist aðeins á markaskoruninni hjá Hrafnhildi Ásu og var komin hörð barátta um Gullskóinn. Í síðustu þremur leikjum deildarinnar skoraði Hrafnhildur Ása átta mörk og skoraði því 19 mörk á tímabilinu.

Klippa: Bestu mörkin: Hrafnhildur Ása markahæst

„Fólk var að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta. Á meðan liðið er að vinna þá skiptir ekki miklu máli hvort ég skori eða einhver annar,“ sagði Hrafnhildur Ása þegar hún var spurð hvort Gullskórinn væri kominn í hausinn á henni.

Hrafnhildur Ása er ekki hreinræktaður framherji og hefur stærstan hluta ferilsins spilað á miðjunni. Sókn Breiðabliks var þó flæðandi og hentaði það Hrafnhildi Ásu með markaskorunina sem er frábær eiginleiki fyrir framherja að hafa.

Miklar væntingar voru til Hrafnhildar Ásu fyrir tímabilið en hún náði að nýta sér það til að standa sig enn betur.

„Ég veit alveg hvað ég get [Gullskórinn] kom mér ekkert á óvart. Það er bara gaman að sjá að fólk hefur trú á mér. Ég er með ágætan haus sem hefur hjálpað mér,“ sagði Hrafnhildur Ása þegar hún var spurð hvort að pressan hafi komist í hausinn hennar.

Umræðuna má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×