Íslenski boltinn

Ingi­björg valin sú efni­legasta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
ingibjorg

Ingibjörg Magnúsdóttir, leikmaður FH, átti frábært tímabil fyrir Fimleikafélagið og var verðskuldað valin efnilegasti leikmaður tímabilsins í Bestu deild kvenna.

Hún tætti upp varnir andstæðinganna í allt sumar. Lagði upp mörk og skoraði sex mörk sjálf.

„Já og nei,“ sagði Ingibjörg aðspurð um hvort hún hefði átt von á þessu.

„Ég veit ekki hvernig framhaldið er. Ég er í FH eins og staðan er núna,“ sagði leikmaðurinn við Helenu Ólafsdóttur í uppgjörsþætti Bestu deildar kvenna.

Ingibjörg segir að allir yngri flokkarnir séu að spila sama kerfi og það sé að skila sér í því að FH sé komið upp með frábært lið sem geti gert góða hluti á komandi árum.

„FH leggur líka upp úr því að við séum í góðu standi og æfum mikið. Það skilar sér.“

Viðtalið við Ingibjörgu hér að neðan.

Klippa: Ingibjörg Magnúsdóttir efnilegust í Bestu deild kvenna



Fleiri fréttir

Sjá meira


×