Íslenski boltinn

Markahæsta um­ferð sögunnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þorri Stefán Þorbjörnsson fagnar marki sínu fyrir Fram í kvöld.
Þorri Stefán Þorbjörnsson fagnar marki sínu fyrir Fram í kvöld. Vísir/Anton

38 mörk voru skoruð í lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta í dag og aldrei áður hafa verið skoruð jafnmörg mörk í einni umferð í efstu deild karla á Íslandi.

Það voru þegar komin 23 mörk eftir fyrri hálfleik í leikjunum fimm sem hófust klukkan tvö og því stefndi strax í met.

Það hægðist aðeins á markaskorinu í seinni hálfleik en metið féll engu að síður.

Gamla metið var 34 marka umferð frá því um mánaðamótin maí-júní 2024. Þá voru skoruð flest mörk á KR-vellinum eða átta mörk en eins fimm mörk í Víkinni og sex mörk í Laugardalnum þar sem Vestri lék heimaleik sinn í umferðinni.

Þegar flautað var til leiksloka í fyrstu tveimur leikjunum var búið að jafna metin því 34 mörk litu dagsins ljós í fyrstu fimm leikjum dagsins. Metið féll því þegar Kristófer Konráðsson kom Fram yfir snemma leiks á móti Víkingum. Þrjú mörk bættust við í Víkinni og því var metið bætt um fjögur mörk á endanum.

Úrslitin í metumferðinni í dag:

KR-Breiðablik 8-3

ÍA-Keflavík 4-4

Víkingur-Fram 2-2

Stjarnan-Valur 6-0

FH-Þór Ak. 1-2

KA-ÍBV 5-1

Úrslitin í gömlu metumferðinni frá 2024 voru eftirfarandi.

9. umferð 2024:

FH-Fram 3-3

KA-ÍA 2-3

Vestri-Stjarnan 4-2

Víkingur-Fylkir 5-2

HK-Breiðablik 0-2

KR-Valur 3-5

Aron Elís Þrándarson, Aron Sigurðarson og Gísli Laxdal Unnarsson voru þeir einu sem skoruðu í báðum þessum metumferðum.

  • Markahæstu umferðir sögunnar:
  • 36 mörk - 27. umferð 2026
  • 34 mörk - 9. umferð 2024
  • 33 mörk - 9. umferð 2026
  • 30 mörk - 19. umferð 2026
  • 29 mörk - 13. umferð 2008
  • 29 mörk - 22. umferð 2018
  • 29 mörk - 4. umferð 2026
  • 28 mörk - 18. umferð 1995



Fleiri fréttir

Sjá meira


×