Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 24. október 2026 18:10 Valdimar Þór Ingimundarson þakkar Gylfa Þór Sigurðssyni fyrir stoðsendinguna í jöfnunarmarki Víkinga. Vísir/Anton Víkingar og Fram gerðu 2-2 jafntefli í lokaleik Íslandsmótsins 2026 en lokaumferð Bestu deildar karla lauk í Víkinni í kvöld. Framarar komust tvisvar yfir í leiknum en Íslandsmeistararnir jöfnuðu í tvígang og komu í veg fyrir tap á sigurhátíðinni en Víkingar tóku við Íslandsskildinum eftir leik. Valdimar Þór Ingimundarson skoraði jöfnunarmarkið eftir sendingu frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Aron Elís Þrándarson jafnaði í fyrra skiptið en þeir Kristófer Konráðsson og Þorri Stefán Þorbjörnsson komu Fram tvívegis yfir. Framarar byrjuðu leikinn af krafti og skoraði Kristófer Konráðsson fyrsta mark leiksins á 10. mínútu með stórkostlegu skoti fyrir utan vítateig eftir stutta hornspyrnu frá Haraldi Einari Ásgrímssyni. Gestirnir voru öflugir og ollu Víkingum töluverðum vandræðum áður en heimamenn náðu betri tökum á leiknum. Aron Elís Þrándarson jafnaði leikinn á 34. mínútu með hörku skoti eftir að boltinn barst til hans eftir hreinsun Framara. Staðan í hálfleik því 1-1. Þorri Stefán Þorbjörnsson kom svo Fram aftur yfir þegar hann skallaði boltann í netið eftir aukaspyrnu Fred Saraiva. Víkingar sóttu þá af auknum krafti og jafnaði Valdimar Þór Ingimundarson metin á 71. mínútu þegar hann náði að breyta stefnu skots frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Bæði lið fengu góð tækifæri til þess að bæta við en fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur því 2-2. Atvik leiksins Eftir áföll og skakkaföll á tímabilinu hjá Víkingum að þá var hugljúft að sjá Ingvar Jónsson lyfta skildinum með félögunum. Ingvar Jónsson lyfti skildinum í kvöld. Stjörnur og skúrkar Valdimar Þór og Aron Elís með mörkin fyrir Víkinga. Gylfi Þór Sigurðsson átti svo stoðsendinguna í marki Valdimars. Ármann Ingi Finnbogason var svo virkilega líflegur fyrir heimamenn í kvöld. Verð að setja Ugga Jóhann Auðunsson í skúrksætið í kvöld en hann kom út úr markinu í marki Þorra og sló hreinlega í autt. Kristófer Konráðsson og Þorri Stefán skoruðu svo sitthvort markið fyrir Fram. Stemning og umgjörð Það var alvöru stemning hérna í Víkinni. Hörku mæting og ég býst við að það verði fagnað fram á nótt. Dómarar Vilhjálmur Alvar Þórarinsson var á flautunni í dag. Honum til aðstoðar voru þeir Gylfi Már Sigurðsson og Eysteinn Hrafnkelsson. Það var mjög gott flæði á leiknum og Vilhjálmur var með góð á honum. Besta deild karla Víkingur Reykjavík Fram
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn