Íslenski boltinn

„Ég vissi ekkert um Ís­land á þessum tíma“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Natasha Anasi fór á Evrópumótið með íslenska landsliðinu en það stærsta fyrir hana á ferlinum var að spila með íslenska landsliðinu.
Natasha Anasi fór á Evrópumótið með íslenska landsliðinu en það stærsta fyrir hana á ferlinum var að spila með íslenska landsliðinu. Getty/Pat Elmont

Knattspyrnukonan Natasha Anasi tók þá stóru ákvörðun að leggja fótboltaskóna upp á hillu eftir þetta tímabil en hún hjálpaði nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur að stimpla sig af miklum krafti inn í Bestu deildina í sumar og auk þess að komast alla leið í bikarúrslitaleikinn.

Natasha endaði sumarið á því að vera valin í íslenska landsliðið en varð að gefa frá sér sætið þar sem hún er ófrísk að sínu öðru barni. Í framhaldinu gaf hún það út að fótboltaferillinn væri á enda. Hún var kvödd fyrir síðasta heimaleik Grindavíkur/Njarðvíkur og mætti síðan í viðtal í uppgjörsþátt Bestu markanna.

Ætlaði að hætta fyrir ári síðan

Hún var spurð út í þessa stóru ákvörðun sína. „Ég var búin að hugsa um þetta svolítið lengi. Eftir að ég fór á EM síðasta sumar þá var ég búin að ákveða að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið. Ég kom til baka af EM, spilaði einn leik og sleit svo krossbandið,“ sagði Natasha Anasi.

Klippa: Natasha ræddi fótboltaferilinn, Ísland og stóru ákvörðunina

„Ég var búin að tala við fjölskylduna mína um þetta en þarna horfði ég bara á eiginmanninn og sagði: Ég get ekki hætt svona. Ég ákvað því að taka eitt tímabil enn,“ sagði Natasha

Hann er þvílíkur sölumaður

„Ég vissi að þetta tímabil myndi verða svolítið ævintýri. Ég var búin að spjalla við Gylfa [Tryggvason, þjálfara] og hann lofaði engu en sagði að þetta yrði bara ævintýri þar sem við myndum taka einn leik í einu. Það var spennandi fyrir mig að fara inn í þetta verkefni með honum. Hann er þvílíkur sölumaður og seldi mér þetta mjög vel,“ sagði Natasha.

Natasha Anasi fagnar marki með Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna í sumar.Vísir/Guðmundur

„Ég gat ekki sagt nei og í hausnum mínum gekk þetta miklu betur en ég vonaðist til,“ sagði Natasha sem ræddi aðeins mismunandi hlutverk leikmanna í Grindavík þar sem hún var í hópi leikmanna sem skiptust á að spila í vörninni og í sókninni. Hún var ánægð með að fá að fara líka í sóknina.

„Þetta var mjög gaman og ég get ekki kvartað yfir því enda finnst mér mjög gaman að skora mörk,“ sagði Natasha. Hún fór líka yfir það hvernig stóð á því að hún endaði á Íslandi þar sem hún lék fyrst með ÍBV.

Myndirnar frá Eyjum

„Ég get alveg verið hreinskilin um það að ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma, bara að þetta væri lítið land í Norður-Atlantshafi,“ sagði Natasha en hún viðurkennir líka að myndirnar af Vestmannaeyjum hafi kallað á sig.

Natasha Anasi hjálpaði nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur mikið í sumar.Vísir/Guðmundur

„Ég hugsaði með mér: Þetta lítur vel út. Ég ákvað bara að stökkva á þetta og prófa. Ég ætlaði bara að spila þetta eina tímabilið og það var ekki planið að vera á Íslandi svona lengi. Svo kynntist ég manninum mínum,“ sagði Natasha hlæjandi en hún er gift Rúnari Inga Erlingssyni, þjálfara karlaliðs Njarðvíkur í körfuboltanum.

Hún segir það stærsta á ferlinum sínum hafa verið að spila fyrir íslenska landsliðið.

Svo yndislegt og dýrmætt

„Það var eitthvað sem ég bjóst ekki við að myndi gerast,“ sagði Natasha og en fékk hún íslenskt ríkisfang eftir langa dvöl hér á landi.

„Þetta var svo yndislegt og dýrmætt. Þessi frábæri tími með landsliðinu og ég er búin að eignast mjög flottar vinkonur í landsliðinu,“ sagði Natasha og nefnir það sérstaklega að fara út til Bandaríkjanna með íslenska landsliðinu.

„Að spila í fæðingarlandinu mínu með nýja landinu mínu sem ég er með svo sterka tengingu til. Þetta var ótrúlega fallegt,“ sagði Natasha en það má horfa á allt viðtalið hér fyrir ofan.

Natasha Anasi fagnar sínu eina landsliðsmarki til þessa.Getty/Ronald Martinez



Fleiri fréttir

Sjá meira


×