„Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2026 09:00 Natasha Anasi fór á Evrópumótið með íslenska landsliðinu en það stærsta fyrir hana á ferlinum var að spila með íslenska landsliðinu. Getty/Pat Elmont Knattspyrnukonan Natasha Anasi tók þá stóru ákvörðun að leggja fótboltaskóna upp á hillu eftir þetta tímabil en hún hjálpaði nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur að stimpla sig af miklum krafti inn í Bestu deildina í sumar og auk þess að komast alla leið í bikarúrslitaleikinn.
Natasha endaði sumarið á því að vera valin í íslenska landsliðið en varð að gefa frá sér sætið þar sem hún er ófrísk að sínu öðru barni. Í framhaldinu gaf hún það út að fótboltaferillinn væri á enda. Hún var kvödd fyrir síðasta heimaleik Grindavíkur/Njarðvíkur og mætti síðan í viðtal í uppgjörsþátt Bestu markanna. Ætlaði að hætta fyrir ári síðan Hún var spurð út í þessa stóru ákvörðun sína. „Ég var búin að hugsa um þetta svolítið lengi. Eftir að ég fór á EM síðasta sumar þá var ég búin að ákveða að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið. Ég kom til baka af EM, spilaði einn leik og sleit svo krossbandið,“ sagði Natasha Anasi. Klippa: Natasha ræddi fótboltaferilinn, Ísland og stóru ákvörðunina „Ég var búin að tala við fjölskylduna mína um þetta en þarna horfði ég bara á eiginmanninn og sagði: Ég get ekki hætt svona. Ég ákvað því að taka eitt tímabil enn,“ sagði Natasha Hann er þvílíkur sölumaður „Ég vissi að þetta tímabil myndi verða svolítið ævintýri. Ég var búin að spjalla við Gylfa [Tryggvason, þjálfara] og hann lofaði engu en sagði að þetta yrði bara ævintýri þar sem við myndum taka einn leik í einu. Það var spennandi fyrir mig að fara inn í þetta verkefni með honum. Hann er þvílíkur sölumaður og seldi mér þetta mjög vel,“ sagði Natasha. Natasha Anasi fagnar marki með Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna í sumar.Vísir/Guðmundur „Ég gat ekki sagt nei og í hausnum mínum gekk þetta miklu betur en ég vonaðist til,“ sagði Natasha sem ræddi aðeins mismunandi hlutverk leikmanna í Grindavík þar sem hún var í hópi leikmanna sem skiptust á að spila í vörninni og í sókninni. Hún var ánægð með að fá að fara líka í sóknina. „Þetta var mjög gaman og ég get ekki kvartað yfir því enda finnst mér mjög gaman að skora mörk,“ sagði Natasha. Hún fór líka yfir það hvernig stóð á því að hún endaði á Íslandi þar sem hún lék fyrst með ÍBV. Myndirnar frá Eyjum „Ég get alveg verið hreinskilin um það að ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma, bara að þetta væri lítið land í Norður-Atlantshafi,“ sagði Natasha en hún viðurkennir líka að myndirnar af Vestmannaeyjum hafi kallað á sig. Natasha Anasi hjálpaði nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur mikið í sumar.Vísir/Guðmundur „Ég hugsaði með mér: Þetta lítur vel út. Ég ákvað bara að stökkva á þetta og prófa. Ég ætlaði bara að spila þetta eina tímabilið og það var ekki planið að vera á Íslandi svona lengi. Svo kynntist ég manninum mínum,“ sagði Natasha hlæjandi en hún er gift Rúnari Inga Erlingssyni, þjálfara karlaliðs Njarðvíkur í körfuboltanum. Hún segir það stærsta á ferlinum sínum hafa verið að spila fyrir íslenska landsliðið. Svo yndislegt og dýrmætt „Það var eitthvað sem ég bjóst ekki við að myndi gerast,“ sagði Natasha og en fékk hún íslenskt ríkisfang eftir langa dvöl hér á landi. „Þetta var svo yndislegt og dýrmætt. Þessi frábæri tími með landsliðinu og ég er búin að eignast mjög flottar vinkonur í landsliðinu,“ sagði Natasha og nefnir það sérstaklega að fara út til Bandaríkjanna með íslenska landsliðinu. „Að spila í fæðingarlandinu mínu með nýja landinu mínu sem ég er með svo sterka tengingu til. Þetta var ótrúlega fallegt,“ sagði Natasha en það má horfa á allt viðtalið hér fyrir ofan. Natasha Anasi fagnar sínu eina landsliðsmarki til þessa.Getty/Ronald Martinez
Besta deild kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík Bestu mörkin Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sport Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Fleiri fréttir Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“