Handbolti

Enginn valdi Ís­land fyrir næsta EM

Sindri Sverrisson skrifar
Strákarnir okkar hafa verið vinsælir hjá gestgjöfum síðustu stórmóta en aðrir urðu fyrir valinu að þessu sinni.
Strákarnir okkar hafa verið vinsælir hjá gestgjöfum síðustu stórmóta en aðrir urðu fyrir valinu að þessu sinni. vísir/Vilhelm

Ísland hefur verið vinsælt val hjá gestgjöfum síðustu stórmóta í handbolta karla en varð ekki fyrir valinu hjá gestgjöfum næsta Evrópumóts sem fram fer í janúar 2028 í Sviss, Portúgal og Spáni. Færeyjar eru í hópi liða sem voru valin.

Þó að enn séu rúmir 14 mánuðir í að mótið hefjist þá var tilkynnt um það í dag að miðasala hæfist í næstu viku.

Um leið tilkynnti EHF hvaða sex liðum væri nú þegar búið að velja sess í riðlunum sex á EM. Gestgjafarnir þrír fengu auðvitað eitt sæti hver en þeir gátu svo valið eitt lið hver til að raða í riðil í sínu landi.

Um frjálst val gestgjafanna er að ræða sem oft veltur á því hve líklegir stuðningsmenn eru til að fjölmenna á mótin. Ísland var valið inn á HM í Þýskalandi í janúar næstkomandi sem og á síðustu tvö Evrópumót: í Svíþjóð í byrjun þessa árs og í Þýskalandi 2024.

Noregur, Þýskaland og Færeyjar fyrir valinu

A- og B-riðill verða á Spáni og munu Spánverjar spila í A-riðli en Norðmenn í B-riðli sem spilaður verður í Valencia, að því gefnu að þeir komist inn á mótið.

Sviss verður á heimavelli í Zürich í C-riðli og valdi Þýskaland í D-riðilinn sem einnig verður í Zürich.

Loks verða Portúgalar í F-riðli í Lissabon og þeir völdu Færeyjar í E-riðilinn sem einnig verður í Lissabon.

Milliriðlar í Valencia og Lissabon en úrslitin í Madrid

Efstu tvö liðin úr A-, B- og C-riðli munu spila í milliriðli í Valencia en efstu tvö liðin úr D-, E- og F-riðli munu spila í milliriðli í Lissabon.

Undanúrslit og úrslit fara svo fram í Madrid en mótið fer fram dagana 13.-30. janúar árið 2028.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×