Handbolti

Reynir Þór með fimm marka leik í Meistara­deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Reynir Þór Stefánsson stóð sig vel með Melsungen í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld. 
Reynir Þór Stefánsson stóð sig vel með Melsungen í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld.  EPA/GEORGI LICOVSKI

Íslenski landsliðsmaðurinn Reynir Þór Stefánsson átti fínan leik í kvöld þegar lið hans fagnaði góðum sigri í Meistaradeildinni í handbolta.

Melsungen vann tveggja marka heimasigur á pólska liðinu Orlen Wisla Plock, 28-26, en gestirnir mættu til leiks sem topplið riðilsins.

Reynir Þór var með fimm mörk úr átta skotum en hann skoraði mikilvægt mark þegar Melsungen var að slíta sér frá gestunum í seinni hálfleik og annað til að innsigla sigurinn undir lokin.

Melsungen var einu marki yfir í hálfleik, 15-14, og náði mest þriggja marka forskoti um miðjan seinni hálfleik en missti muninn aftur niður í eitt mark. Lokamínúturnar voru spennandi en Melsungen var sterkari og landaði mikilvægum sigri.

Aðeins tveir leikmenn Melsungen skoruðu meira en Reynir. Erik Balenciaga Azcue og Hans Aaron Mensing skoruðu báðir sex mörk eða einu marki meira en uppaldi Framarinn.

Melsungen er með sex stig í riðlinum eins og Wisla Plock og franska liðið Nantes. Melsungen hefur unnið þrjá af fimm leikjum og tapaði fyrri leiknum á móti Wisla Plock.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×