Handbolti

FH gekk frá Fram í seinni hálf­leik

Aron Guðmundsson skrifar
Ómar Darri raðaði inn mörkum í liði FH í dag
Ómar Darri raðaði inn mörkum í liði FH í dag vísir/Diego

FH hafði betur gegn fram á útivelli er liðin mættust í Olís deild karla í handbolta í dag. Lokatölur urðu 36-28, FH í vil.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og munaði aðeins tveimur mörkum á þeim í hálfleik 18-16, FH í vil.

FH-ingar hertu hins vegar tökin á leiknum í seinni hálfleik og fóru að lokum með öruggan átta marka sigur af hólmi, 36-28.

Ómar Darri Sigurgeirsson fór mikinn í liði FH í dag og skoraði ellefu mörk. 

Með sigrinum fer FH upp í þriðja sæti Olís deildarinnar og er þar með sama stigafjölda, níu stig, og Afturelding í 2.sætinu. Fram er í áttunda sæti með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×