Handbolti

Nýr styrktaraðili dönsku úr­vals­deildarinnar í hand­bolta um­deildur

Andri Broddason skrifar
Donni spilar fyrir SAH í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta þar sem veðmálasíða var að byrja að styrkja.
Donni spilar fyrir SAH í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta þar sem veðmálasíða var að byrja að styrkja. sa-h.dk

Danska úrvalsdeild karla í handbolta hefur fengið nýjan styrktaraðila sem er umdeilanlegur. Næstu þrjú ár verður aðalstyrktaraðili deildarinnar Betoro sem er veðmálasíða.

Ekki eru allir ánægðir með þennan styrktaraðila þar sem þetta sendir röng skilaboð til áhorfenda deildarinnar. Í Danmörku, sem og öðrum löndum, er veðmálafíkn að verða sífellt stærra vandamál og er deildin með þessu að grafa undan forvörnum gegn veðmálum.

Í Danmörku er umræða um veðmál mikið hitamál þar sem sífellt yngra fólk er byrjað að veðja. Danska ríkisútvarpið hafði samband við nokkur félög í dönsku úrvalsdeildinni og voru þau hissa á því að nýi styrktaraðilinn væri veðmálasíða.

Thomas Christensen, formanni dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta, finnst þessi samningur ekki vera stórmál. Hann er handviss um að það muni ekki fleiri verða háðir veðmálum vegna samnings deildarinnar við veðmálasíðu.

„Við hefðum ekki bjargað neinum frá veðmálafíkn ef við hefðum sagt nei við þessum samningi. En við verðum að vera meðvituð um hvaða skilaboð við erum að senda og við þurfum að fylgja lögum um auglýsingar,“ sagði Thomas Christensen í viðtali við danska ríkisútvarpið.

Anders Holm, stjórnarformaður stuðningsmannaklúbbs Fredricia, er ekki sáttur við nýja samninginn og hélt að það væri 1. apríl þegar hann heyrði fréttirnar. Með því að vera mikið í kringum stuðningsmenn handbolta hefur hann heyrt af sögum þar sem stuðningsmenn voru að eyða öllu sparnaðarfé barna sinna í veðmál. Margir aðdáendur hafi orðið stórskuldugir og tekið á sig yfirdrátt til þess að reyna að borga skuldir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×