Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 17. október 2026 12:15 Adam Ægir skorar á móti gömlu félögunum og hendir í þekkt fagn. Vísir/Guðmundur Valur sigraði 4-1 í næstsíðustu umferð neðri hluta Bestu deildar karla í dag. Brekkan er því ansi brött fyrir lokaumferðina þar sem KA þarf bæði að ná hagstæðum úrslitum í sínum leik og treysta á úrslit Þórsara falli þeim í hag til að halda sæti sínu í deildinni. Leikurinn byrjaði nokkuð rólega en mikill vindur setti svip sinn á leikinn og hafði töluverð áhrif á spilamennsku liðanna. Myles Veldman braut ísinn á 23. mínútu þegar fyrirgjöf hans frá vinstri kanti rataði óvænt í netið. Adam Ægir Pálsson jafnaði hins vegar metin aðeins sjö mínútum síðar eftir laglega skyndisókn KA. Bæði lið áttu fínar sóknir og fengu færi til að bæta við mörkum en fleiri urðu þau ekki fyrir hlé. Staðan var því 1-1 þegar flautað var til hálfleiks. Tryggvi Hrafn Haraldsson bætti svo við öðru marki Vals snemma í seinni hálfleik. KA menn hreinsuðu boltann í burtu eftir langt innkast en boltinn barst ekki lengra en til Tryggva við markteiginn. Hann tók boltann á bringuna, hélt honum á lofti áður en hann lét vaða á markið með vinstri fæti. Stórglæsilegt mark. Dagur Orri Garðarsson tvöfaldaði forystu Vals eftir frábæran undirbúning þar sem hann átti sjálfur stóran þátt. Dagur klobbaði varnarmann KA og brunaði upp völlinn áður en hann sendi boltann á Tryggva sem lék laglega á varnarmann KA og sendi boltann aftur á Dag. Hann komst nær markinu og lyfti boltanum snyrtilega yfir Steinþór í markinu. Dagur innsiglaði svo frábæran sigur Vals á lokasekúndunum í uppbótartíma, 4-1. KA mætir ÍBV í lokaumferðinni á meðan Þórsarar sækja FH heim. Vindur, grátt og blautt í Reykjavík í dag.Vísir/Guðmundur Atvik leiksins Mark Tryggva snemma í seinni hálfleik. Reyndist vendipunktur því Valsmenn tóku nánast öll völd í kjölfarið. Stjörnur og skúrkar Tryggvi Hrafn Haraldsson með mark og stoðsendingu. Dagur Orri Garðarsson var gríðarlega öflugur í dag í sínum baráttum og skilaði einnig af sér tveimur mörkum. Góður dagur hjá Degi.Vísir/Guðmundur Stemning og umgjörð Ágæt mæting á Hlíðarenda þrátt fyrir gula viðvörun. Dómarar Elías Ingi Árnason var á flautunni í dag. Jovan Subic og Þráinn Jón Elmarsson voru honum til aðstoðar. Fínasta dómgæsla í dag, engin vafamál og allir sáttir. Engin vafamál hjá Elíasi í dag.Vísir/Guðmundur Íslenski boltinn Fótbolti Valur KA Besta deild karla