Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frá­bæran sigur

Ester Ósk Árnadóttir skrifar
Þór er í mikilli hættu á því að falla úr Bestu deild karla.
Þór er í mikilli hættu á því að falla úr Bestu deild karla. Guðmundur/Vísir

Þór vann gríðarlega mikilvægan 3–1 sigur á Stjörnunni á VÍS-vellinum á Akureyri í dag og lyfti sér upp úr fallsæti Bestu deildar karla. Þórsarar lentu snemma undir en sneru leiknum sér í vil og eru nú með 27 stig, einu stigi meira en KA fyrir lokaumferðina.

Gestirnir byrjuðu af krafti og komust yfir strax á annarri mínútu. Emil Atlason átti þá skot af stuttu færi sem Aron Birkir Stefánsson varði en Örvar Eggertsson fylgdi á eftir og kom boltanum í netið, 0-1.

Þórsarar létu markið ekki slá sig út af laginu og tóku fljótt völdin á vellinum. Ásbjörn Líndal Arnarsson jafnaði á tíundu mínútu með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu, föst spyrna og niðri í markmannshornið. Sjö mínútum síðar kom Sverrir Páll Ingason heimamönnum yfir með góðu skoti eftir flottan sprett.

Þór var mun sterkari aðilinn lengst af fyrri hálfleik og hélt pressu á gestunum. Stjarnan komst þó nálægt því að jafna undir lok hálfleiksins þegar Alex Þór Hauksson átti skot sem Kristófer Kristjánsson bjargaði á marklínu. Staðan því 2–1 í hálfleik.

Þórsarar héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og bættu við þriðja markinu á 57. mínútu. Einar Freyr Halldórsson sendi þá inn fyrir vörn Stjörnunnar á Þorra Ingólfsson sem gerði vel og afgreiddi boltann í fjærhornið.

Gestirnir gerðu breytingar í kjölfarið og fengu færi til að minnka muninn. Aron Birkir varði meðal annars frá Örvari eftir mistök í vörn Þórs  og varamaðurinn Andri Rúnar Bjarnason átti einnig skalla af stuttu færi sem Aron varði. 

Þórsarar höfðu góð tök á leiknum og lönduðu verðskulduðum sigri. Þeir hafa því örlögin í sínum höndum fyrir lokaumferðina þar sem sigur gegn FH í Kaplakrika tryggir liðinu áframhaldandi sæti í Bestu deildinni.

Atvik leiksins

Þriðja mark Þórs á 57. mínútu sem Þorri Ingólfsson skoraði eftir skyndisókn gerði út um leikinn. 

Stjörnur og skúrkar

Þórsarar sem heild voru frábærir í dag og skópu sigurinn saman, þvílík barátta og vilji hjá hverjum og einum leikmanni. Það er erfitt að taka einhvern einn út fyrir sviga. 

Það sama má segja um Stjörnuliðið, þvílíkt andleysi og þrátt fyrir að komast yfir voru þeir aldrei líklegir til að gera neitt eftir að Þór komst yfir og höfðu ekki svör við baráttu og ákefð heimamanna.

Stemning og umgjörð

Það var ágætlega mætt á leikinn þrátt fyrir rokið og stuðningsfólk Þórs lét vel í sér heyra og hvöttu sína menn til sigurs.

Dómarinn

Þórður Þorsteinsson Þórðarson og hans teymi stóðu sig vel í dag. Lítið var flautað á óþarfa og leikurinn fékk að fljóta vel. Eitt atvik var þó á 88. mínútu þegar Kevin Vazquez virtist kýla Andra Rúnar Bjarnason beint fyrir fram Þórð. Kevin var þegar á gulu spjaldi og mátti teljast heppinn að fá að klára leikinn.

Brynjar Kristmundsson: „Við ætluðum að nýta seinni hálfleikinn öðru“ 

„Það er alltaf fúlt að tapa, það voru erfiðar aðstæður til að spila fótbolta en Þórsararnir gerðu þetta bara betur en við,“ sagði Brynjar Kristmundsson eftir 3-1 tap á móti Þór.

„ Við náðum aldrei stjórn í leiknum, við komum út í seinni hálfleikinn og ætluðum að pinna þá aftar en við náðum einhvern veginn aldrei að gera það. Þetta voru tilviljunarkenndar sóknir hjá okkur, töpum boltanum á eigin vallarhelming og þeir komast í 3-1 og þá var þetta bara orðið erfitt.“

Stjarnan byrjaði leikurinn betur og komst yfir strax á annarri mínútu en Þór svaraði fyrir sig nokkrum mínútum síðar. Brynjar var spurður út í sjálfstraustið hjá liðinu. 

„Við fáum bara á okkur klaufalega aukaspyrnu sem þeir nýta og svo er seinna markið hjá þeim í fyrri hálfleik bara eitthvað draumamark. Mögulega er hægt að setja þetta á eitthvað á vöntun á sjálfstrausti en samt sem áður þá byrjuðum við vel og vorum alveg fínir í fyrri hálfleik þar sem við vorum að spila á móti miklum vind. Það var orka í okkur, við ætlum síðan að nýta seinni hálfleikinn öðruvísi. Við ætluðum að taka betur yfir leikinn en það bara gekk ekki.“

Stjarnan spilar lokaleikinn á heimavelli á móti Val. 

„Við verðum að reyna að enda þetta á sigri, það er gott að ljúka tímabilinu á sigri. Það vill engin fara með fjóra tapleiki í röð á bakinu út úr þessu tímabili. Við þurfum að gíra okkur upp í loka vikuna, enda þetta vel.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira