Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Mohamed Salah opnaði markareikning sinn með Trabzonspor þegar liðið vann 2-1 sigur á Istanbul Basaksehir í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag. Salah skoraði bæði mörk Trabzonspor í leiknum. Fótbolti 23.8.2026 22:32
Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Víkingur vann öruggan 2-0 sigur á Val í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Sigurinn þýðir að Víkingur er með átta stiga forystu á toppi deildarinnar á meðan Valur gæti hreinlega sogast niður í fallbaráttuna. Íslenski boltinn 23.8.2026 18:32
Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Barcelona vann 0-5 útisigur á Elche í fyrsta leik sínum í spænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Raphinha og Fermín López skoruðu tvö mörk hvor fyrir Börsunga. Fótbolti 23.8.2026 19:03
„Í lok dagsins þá eru þetta þrjú stig fyrir okkur og það er það eina sem skiptir máli“ Sport 23.8.2026 19:57
„Þurfum að nýta góðu kaflana betur“ Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, hefði viljað sjá sitt lið vera skilvirkara þegar það laut í lægra haldi fyrir Stjörnunni. Mistök þegar liðið væri með yfirhöndina í leikjum séu að reynast liðinu dýrkeypt. Fótbolti 23. ágúst 2026 19:50
Haukar komnir upp í Lengjudeildina Eftir sjö ár í 2. deild leika Haukar í Lengjudeild karla á næsta tímabili. Þetta var ljóst eftir 5-2 sigur á Dalvík/Reyni á Ásvöllum í dag. Íslenski boltinn 23. ágúst 2026 19:46
Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum ÍA og FH gerðu 1-1 jafntefli í 20. umferð Bestu deildar karla. Gestirnir komust yfir í fyrri hálfleik en Gísli Eyjólfsson jafnaði metin í síðari hálfleik með skalla. Fleiri urðu mörkin ekki og jafntefli niðurstaðan. Íslenski boltinn 23. ágúst 2026 19:00
Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Stefan Alexander Ljubicic skoraði eina mark leiksins þegar Keflavík fékk ÍBV í heimsókn í 20. umferð Bestu deild karla í dag. Þetta var annar sigur Keflvíkinga í röð. Íslenski boltinn 23. ágúst 2026 19:00
Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Stjarnan vann sannfærandi 4-2 sigur þegar liðið fékk Þór í heimsókn í Miðgarð í Garðabæinn í 20. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 23. ágúst 2026 18:54
Rúnar Alex fékk á sig fjögur þegar FCK tapaði fyrsta deildarleiknum FC Kaupmannahöfn tapaði sínum fyrsta leik í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu þegar liðið steinlá fyrir Viborg, 4-0, í dag. Rúnar Alex Rúnarsson stóð á milli stanganna hjá FCK og Viktor Bjarki Daðason kom inn á um miðbik seinni hálfleiks. Fótbolti 23. ágúst 2026 18:50
„Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Dominik Szoboszlai sá til þess að Liverpool fengi stig úr leiknum gegn Newcastle United á St James' Park í dag. Hann jafnaði úr vítaspyrnu þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Ungverjinn sagði að Liverpool hefði sýnt baráttuanda í leiknum í dag. Enski boltinn 23. ágúst 2026 18:14
Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Dominik Szoboszlai tryggði Liverpool jafntefli gegn Newcastle United með marki úr vítaspyrnu þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur á St James' Park í dag, 2-2. Enski boltinn 23. ágúst 2026 17:30
Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Manchester City hefur náð samkomulagi við Lille um kaup á fransk-marokkóska miðjumanninum Ayyoub Bouaddi. Hann kemur til félagsins fyrir um 95 milljónir evra og er ætlað að leysa Spánverjann Rodri af hólmi. Enski boltinn 23. ágúst 2026 16:46
Ísak skoraði og klúðraði víti í íslenskum nýliðaslag Ísak Snær Þorvaldsson skoraði mark Lyngby en klúðraði líka vítaspyrnu í 2-1 tapi á útivelli gegn Horsens í nýliðaslag Íslendingaliðanna í 5. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 23. ágúst 2026 16:01
Brynjólfur hélt áfram að skora en allt hrundi á hinum endanum Brynjólfur Darri Willumsson skoraði þriðja leikinn í röð þegar hann kom Groningen yfir á útivelli gegn PSV en 5-1 tap varð niðurstaðan. Fótbolti 23. ágúst 2026 14:31
Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Aston Villa galt afhroð á útivelli gegn Brighton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. 4-0 tap varð niðurstaðan og Villa spilaði seinni hálfleikinn með aðeins tíu leikmenn. Enski boltinn 23. ágúst 2026 13:41
Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri Thelma Karen Pálmadóttir gaf stoðsendingu í 4-1 sigri BK Hacken gegn AIK í 15. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag. Fótbolti 23. ágúst 2026 13:37
Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Manchester City vann 2-1 endurkomusigur gegn Bournemouth í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Miðverðirnir Marc Guehi og Josko Gvardiol stigu upp fyrir City. Enski boltinn 23. ágúst 2026 12:33
Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Ollie Watkins er ekki í leikmannahópi Aston Villa fyrir fyrsta leik tímabilsins gegn Brighton sem hefst núna klukkan eitt. Þjálfarinn Unai Emery vill ekki tjá sig um hvort Watkins sé á förum. Enski boltinn 23. ágúst 2026 12:29
Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Tímabilið hefur farið illa af stað hjá Brynjar Inga Bjarnasyni og Daníel Leó Grétarssyni með liði Sonderjyske. Liðið hefur ekki enn unnið leik og tapaði 0-3 gegn Nordsjælland í 5. umferð dönsku deildarinnar í dag. Fótbolti 23. ágúst 2026 12:02
Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Erling Haaland ákvað að láta fagurt hár sitt fjúka fyrir fyrsta leik Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á eftir. Enski boltinn 23. ágúst 2026 10:44
„Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Enzo Maresca þjálfari Manchester City er í leit að „nýjum Rodri“ í stað Spánverjans sem fór til Barcelona í síðustu viku. Maresca segir City hafa ítrekað sýnt fram á hæfni í að endurnýja hópinn. Enski boltinn 23. ágúst 2026 10:35
KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Knattspyrnusambönd Íslands, Danmerkur, Færeyja, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu um vantraust á Gianni Infantino, forseta FIFA. Fótbolti 23. ágúst 2026 09:32
Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Lionel Messi skoraði annan leikinn í röð fyrir Inter Miami en það dugði skammt í 1-2 tapi gegn Toronto FC. Miami-liðið hefur fengið eitt stig úr síðustu fimm leikjum. Fótbolti 23. ágúst 2026 09:22
Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Ekki er annað hægt að segja en að líf spænska fótboltamannsins Álex Calatrava hafi breyst mikið á síðustu árum. Hann upplifir nú drauminn í spænsku úrvalsdeildinni en ekki er langt síðan hann vaknaði eldsnemma á morgnana til að mæta í vinnuna í Primark. Fótbolti 23. ágúst 2026 09:01