Enski boltinn

Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arteta segir tapið munu hvetja Arsenal-menn áfram.
Arteta segir tapið munu hvetja Arsenal-menn áfram. Getty

Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, segir tap liðsins fyrir PSG í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í vor sitja í sér. Hann er rétt að byrja með Arsenal-liðið sem hann gerði að Englandsmeisturum í vor og framlengdi samning sinn í Norður-Lundúnum í gær.

Arsenal tilkynnti um nýjan samning Arteta í gær sem hann framlengir til sumarsins 2030. Þar með fær hann verðlaun fyrir frábæran árangur en síðan hann tók við liðinu árið 2019 hefur það tekið stakkaskiptum og varð Englandsmeistari í vor.

Í löngu viðtali við The Athletic fer hann um víðan völl er viðkemur starfi sínu og sýn á fótboltann.

Það þurfti þó að snerta á vonbrigðunum sem fylgdu í vor eftir að enski meistaratitilinn var tryggður er Arsenal tapaði fyrir PSG í vítaspyrnukeppni í úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Fyrrverandi knattspyrnustjóri Arsenal, Arsene Wenger, þekkir að tapa slíkum leik og gerði það tuttugu árum fyrr í tapi fyrir Barcelona vorið 2006. Wenger sagði það meðal sárustu ósigra sinna og hann bæri þess enn „ör á hjarta sínu“.

Arteta tekur undir það.

„Ég ber enn örið, eins og Arsène segir. Ég er enn með þetta eitur í æðum mér. Það verður að vera þar áfram því það er þá sem maður lærir, og það verður líklega gríðarlegur drifkraftur fyrir mig og alla.“

Arsenal hefur leik á Englandi að nýju um helgina eftir langt landsleikjahlé.

Sjötta umferð deildarinnar fer af stað með leik Arsenal og Leeds á Emirates-vellinum í hádeginu á laugardag. Leikurinn hefst klukkan 11:30 og verður sýndur beint á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×