Fótbolti

Sluppu við her­skyldu en fögnuðu of mikið

Andri Broddason skrifar
Leikmenn suður-kóreska landsliðsins þurftu að afsaka yfirgengileg fagnaðarlæti fyrir að sleppa frá herskyldu.
Leikmenn suður-kóreska landsliðsins þurftu að afsaka yfirgengileg fagnaðarlæti fyrir að sleppa frá herskyldu. Stringer/Getty Images

Mikil fagnaðarlæti brutust út síðustu helgi þegar Suður-Kórea vann Asíuleikana í fótbolta. Fagnaðarlætin voru ekki einungis vegna sigurs heldur einnig því leikmenn losnuðu við herskyldu.

20 af þeim 23 leikmönnum liðsins fengu með sigrinum að sleppa við herskyldu í landinu fyrir mikinn árangur innan íþrótta. Liðið er aðallega skipað leikmönnum sem eru undir 23 ára og því mikill léttir fyrir þá að þurfa ekki að fara í herinn.

Í Suður-Kóreu er skylda fyrir alla karlmenn að vera 18 til 21 mánuð í hernum áður en þeir verða 28 ára. Leikmenn sem fá gullverðlaun á annaðhvort Asíuleikunum eða Ólympíuleikunum þurfa ekki að fara í herinn heldur einungis sinna grunnþjálfun sem tekur nokkrar vikur.

Leikmenn kóreska liðsins sögðu eftir leik að það væri mikilvægara fyrir þá að losna við herskylduna heldur en að vinna. Það féll ekki vel í kramið í heimalandinu og byrjaði umræða aftur innan landsins hvort að íþróttamenn eigi að fá undanþágu frá herskyldu.

Þeir leikmenn sem fóru í viðtal eftir leik hafa nú formlega beðist afsökunar en fleiri stórir íþróttamenn hafa einnig losnað við herksyldu. Kylfingurinn Tom Kim losnaði við herskyldu eftir að hafa unnið Asíuleikana í golfi og Son Heung-min var einnig laus fyrir að vinna gull á Asíuleikunum í fótbolta.

Það var þó dramatík yfir því þar sem tveir frægir fjölmiðlamenn í Suður-Kóreu gerðu grín að herskyldu Son. Það sem þeir vissu ekki var að kveikt var á míkrafóni hjá þeim og heyrði öll þjóðin gagnrýni þeirra. Til mótmæla sinnti Suður-Kórea ekki sínum skyldum í að tala við kóreska miðla meðan á mótinu stóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×