Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Valur Páll Eiríksson skrifar 8. október 2026 21:00 Kári Jónsson gerði sitt en ungi maðurinn stal senunni. vísir/Diego Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson stal senunni í öruggum 90-77 sigri Vals á Stjörnunni í fyrstu umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Frammistaða drengsins var lygileg. Slæm tíðindi blöstu við Valsmegin í upphafi leiks þar sem Kristófer Acox glímdi við væg meiðsli í kálfa sem héldu honum frá þátttöku og þá er nýr bandarískur leikmaður liðsins, Jelani Simmons, ekki kominn með leikheimild. Allir voru klárir í slaginn hjá Stjörnunni, þar á meðal reynsluboltinn Ægir Þór Steinarsson sem hafði meiðst illa í KR-heimilinu í úrslitakeppninni síðasta vor. Á pappír var Stjörnuliðið því sterkara, en pappír hefur aldrei unnið körfuboltaleik. Valsmenn hófu leikinn af krafti og voru með undirhöndina í þó jöfnum fyrsta leikhluta. Góður endasprettur gestanna þýddi að staðan var 22-22 að honum loknum. Enn var Valur betri í öðrum leikhlutanum þar sem Dwayne Lautier, sem kom frá Njarðvík í sumar, var öflugur sem og leiddi heimamenn sem voru skrefi á undan allan leikhlutann en voru þó aðeins fimm stigum yfir, 46-41, í hálfleik. Valsmenn létu kné fylgja kviði eftir hléið. Atli Freyr Haraldsson Katrínarson gaf þar stjörnunni Lautier ekkert eftir og var fyrstur á vellinum til að ná tvöfaldri tvennu. Ofan á það var hann með 100 prósent skotnýtingu þar til langt var liðið á fjórða leikhluta. Valsmenn 69-59 fyrir lokaleikhlutann og þar tókst þeim endanlega að slá bitlaust, litlaust og andlaust Stjörnulið í rot. Ofan á allt fékk hinn 16 ára gamli Atli Freyr heiðursskiptingu undir lok leiks en Valsstúkan, sem er iðulega ekki sú háværasta, lét vel í sér heyra þegar hann setti hverja körfuna á fætur annarri. Valur vann 90-77 sigur og byrja tímabilið frábærlega án bæði Kristófers Acox sem og Kanans Jelani Simmons. Garðbæingar þurfa aftur á móti að skoða sín mál og fara aftur að teikniborðinu. Atvik leiksins Heiðursskipting 16 ára gamals Atla Freys sem var að spila sinn fyrsta leik í efstu deild. Hefur þetta einhvern tímann gerst áður. Þetta var í það minnsta í fyrsta sinn sem Finnur Freyr Stefánsson gaf svo ungum pjakki heiðursskiptingu. Stjörnur og skúrkar Atli Freyr skoraði 18 stig, tók tólf fráköst og var með skotnýtingu upp á 77 prósent. Bestur á vellinum. Lautier með 18 stig og tíu fráköst og Pablo Bertone með 17 stig gegn gömlu félögunum. Amandas Urkis bestur hjá Stjörnunni með 21 stig og þá skoraði Hilmar Smári Henningsson 19 stig, en hann skoraði aðeins tólf stig utan af velli, með skotnýtingu upp á 35 prósent og klikkaði á öllum sex þriggja stiga tilraunum. Ægir Þór Steinarsson tók ellefu skot úr opnum leik og skoraði ekki úr einu einasta og Kaninn Austin Price var ósýnilegur hjá Stjörnunni með sex stig og skaut aðeins fimm sinnum. Dómarar Ekkert út á dómgæsluna að setja. Stemning og umgjörð Fín mæting á fyrsta leik á Hlíðarenda og vel að málum staðið að venju. Að 16 ára heimamaður væri stjarna leiksins gerði mikið fyrir stemninguna. Finnur Freyr: Gríðarlegt efni Finnur Freyr er væntanlega sátturVísir/Guðmundur Þórlaugarson „Bara flott frammistaða. Við erum búnir að vera að spila án þeirra í þessum undirbúningsleikjum. Við vorum ekki án leikmanna sem við höfum verið án, en þetta var flott bara,“ segir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, eftir leik. „Við vorum að gera mistök varnarlega í fyrsta leikhlutanum og svona á köflum í öðrum leikhlutanum en mér fannst við koma bara flottir varnarlega út í seinni hálfleikinn og náðum að kannski stýra þeim í þær aðgerðir sem við vildum að þeir færu í. Bara kúdos á liðið varnarlega og framlagið.“ Finnur Freyr veitti Atla Frey, sem er títtnefndur hér að ofan, heiðursskiptingu undir lok leiks en hann man ekki eftir að hafa gert slíkt fyrir 16 ára leikmann áður. Aðspurður um hvort hann muni eftir annarri eins frammistöðu 16 ára drengs í fyrsta leik segir Finnur: „Ég veit það ekki, en hann er bara búinn að vera frábær. Hann var frábær með U16 landsliðinu í sumar. Við ákváðum í fyrra að halda honum frá meistaraflokknum og taka eitt ár í yngri flokkunum áður en hann kæmi inn í hópinn. „Hann var sýndi það strax á fyrstu æfingunum í sumar að hann væri bara klár í slaginn og þetta er gríðarlegt efni. Ég ætla ekki að segja að ég hafi beint búist við þessu frá honum, en hann er bara frábær körfuboltamaður sem á bjarta framtíð fyrir sér.“ Hann byrjar í dag og hann fer ekkert mikið á bekkinn úr þessu, ef hann spilar svona. „Nei, nei. Hann nýtti það hugsanlega að það voru færri menn til taks en hann er búinn að byrja alla leiki á undirbúningstímabilinu og við ákváðum að byrja honum í þessum leik. Ég hef trú á þessum strák og hann er bara búinn að sýna það að hann á skilið þær mínútur sem hann fær og þau tækifæri og þakkaði fyrir traustið í dag,“ segir Finnur Freyr. Emil Barja: Ömurlegt, lélegir og 16 ára strákur jarðar okkur Emil Barja hafði ekki yfir miklu að gleðjast í kvöld.Vísir / Hulda Margrét „Þetta er bara ömurlegt. Mér fannst við spila alveg skelfilega. Við vorum soft og bara lélegir,“ segir Emil Barja, þjálfari Stjörnunnar eftir leik. „Ég veit ekki hvað það var. Kannski var það af því að þeir sáu að það vantaði einhverja leikmenn og héldu að þetta væri einfalt eða eitthvað, svo kemur bara einhver 16 ára strákur og jarðar okkur. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum,“ segir Emil. Skotnýting Stjörnunnar var slæm og sóknarleikurinn gekk illa. Aðspurður um hvort það hafi frekar verið slæm skot eða slæmar opnanir segir Emil: „Slæmar ákvarðarnir í að láta boltann ganga mjög lítið. Við erum með Austin sem á að vera ein besta skytta í deildinni sem tekur bara fjóra þrista og kemst aldrei inn í leikinn því þetta er svo einhæft. Menn fara bara að körfunni og vona það besta. Við verðum að gera miklu betur sóknarlega, láta boltann ganga og finna betri opnanir,“ „Við getum notað þennan leik og séð hvað við vorum lélegir. Vonandi spilum við ekki aftur svona. Það jákvæða er að það er bara ein leið upp,“ segir Emil. Bónus-deild karla Valur Stjarnan Körfubolti