Enski boltinn

Sjóð­heitur Orri sagður í sigti Everton

Sindri Sverrisson skrifar
Það má fastlega reikna með því að Orri Óskarsson sé á ratsjánni hjá stórum félögum í Evrópu.
Það má fastlega reikna með því að Orri Óskarsson sé á ratsjánni hjá stórum félögum í Evrópu. Getty/Juan Manuel Serrano Arce

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson gæti verið á leið í ensku úrvalsdeildina í janúar. Íslandsvinurinn David Moyes er sagður hafa hug á að krækja í framherjann sem verið hefur sjóðheitur með Real Sociedad að undanförnu.

Vefmiðillinn Teamtalk fullyrðir þetta í grein í dag. Miðillinn kveðst hafa heimildir fyrir því að Everton-menn fylgist náið með framgöngu Orra nú þegar verið sé að vega og meta kosti í framherjamálum áður en félagaskiptaglugginn opnast í janúar.

Everton veitir ekki af framherja eftir að Beto var seldur til Fiorentina í sumar og enginn fenginn í hans stað. Félagið ætlaði að fá Folarin Balogun frá Monaco en þær áætlanir duttu upp fyrir á síðustu stundu. Því hefur Thierno Barry verið eini hreinræktaði framherjinn í hópnum á leiktíðinni.

Teamtalk segir að fleiri úrvalsdeildarfélög, Tottenham, Newcastle, Sunderland og Brentford, fylgist einnig með Orra en ekki kæmi á óvart ef framganga hans að undanförnu hefði vakið athygli.

Orri hefur nú skorað í þremur leikjum í röð fyrir bikarmeistara Real Sociedad, gegn Málaga og Levante í spænsku deildinni og gegn Lilleström í Evrópudeildinni. Áður hafði hann skorað þrjú mörk og átt tvær stoðsendingar í leikjunum fjórum í síðustu landsleikjatörn.

Orri, sem er uppalinn hjá Gróttu, kom til Real Sociedad fyrir rúmum tveimur árum fyrir metfé í sögu FC Kaupmannahafnar, eða 20 milljónir evra. Hann hafði þá verið leikmaður FCK frá árinu 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×