Íslenski boltinn

Breytingar boðaðar í Garða­bæ

Valur Páll Eiríksson skrifar
Viktor Bjarki Arnarsson, nýr yfirmaður knattspyrnumála, Halldór Orri Björnsson, nýr formaður knattspyrnudeildar, og Rúnar Páll Sigmundsson, nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar.
Viktor Bjarki Arnarsson, nýr yfirmaður knattspyrnumála, Halldór Orri Björnsson, nýr formaður knattspyrnudeildar, og Rúnar Páll Sigmundsson, nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar. Vísir/Sigurjón

Yfirmaður knattspyrnumála hefur verið ráðinn í fyrsta sinn í Garðabæ en Viktor Bjarki Arnarsson var kynntur til leiks í dag. Rúnar Páll Sigmundsson sem stýrði liðinu um átta ára skeið á þá að leiða liðið inn í nýja tíma.

Halldór Orri Björnsson, formaður knattspyrnudeildar félagsins, kynnti þá Viktor Bjarka og Rúnar Pál til leiks á blaðamannafundi á Samsung-vellinum í dag. Þar voru boðaðar allsherjar breytingar, þar á meðal endurvakning ráða innan knattspyrnudeildarinnar á við meistaraflokksráð karla og kvenna, barna- og unglingaráð og fleira til.

„Ég er bara mjög ánægður að hafa fengið símtalið frá Halldóri og ég hefði ekki yfirgefið Gróttu fyrir neinn annan klúbb,“ segir Rúnar Páll Sigmundsson, nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar.

„Þetta var mjög þungt sumar karlamegin og við ætlum að reyna að fá Stjörnusamfélagið með okkur,“ segir Halldór Orri Björnsson, nýr formaður knattspyrnudeildar hjá félaginu.

„Ég tel ekki Stjörnuna vera á þeim stað sem hún á að vera á. Klúbburinn er svolítið klofinn. Með ráðningu Rúnars tel ég að verði auðveldara að þétta hópinn aftur,“ segir Viktor Bjarki Arnarsson, nýr yfirmaður knattspyrnumála Stjörnunnar.

Var búinn með tíma sinn í Garðabæ

„Ég var eiginlega búinn með minn tíma hér. En síðan hvernig þetta þróaðist í sumar, bæði árangurinn og neikvæðnin í garð Stjörnunnar, mér fannst það leiðinlegt. Því fannst mér ég geta gert eitthvað fyrir félagið mitt. Þegar símtalið kom þá stökk ég á það,“ segir nýi þjálfarinn Rúnar Páll sem stýrði liðinu áður milli 2013 og 2021.

„Það er fullt af fólki innan Garðabæjar sem er tilbúið að hjálpa til svo við gefum fleirum tækifæri að leggja hönd á plóg. Með því að mynda meistaraflokksráð karla og kvenna aftur og barna- og unglingaráð erum við að efla umgjörðina í kringum þessar deildir,“ segir Halldór Orri.

Rúnar Pál hlakkar þá til að komast út á gras.

„Þeir fá smá frí gaurarnir núna. Við ætlum að byrja að æfa hérna 1. desember. Þá byrjar fjörið,“ segir Rúnar Páll.

Þú telur niður á meðan.

„Já, heldur betur maður.“

Innslag af fundinum má sjá í spilaranum að ofan. Viðtöl við þremenningana má sjá í heild hvert fyrir sig hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×