Fótbolti

Ringul­reið og fjölda­slags­mál eftir stórleikinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Archie Brown í Fenerbahce tekst á við Abdulkerim Bardakci úr Galatasaray í gær. Upp úr sauð eftir leik liðanna.
Archie Brown í Fenerbahce tekst á við Abdulkerim Bardakci úr Galatasaray í gær. Upp úr sauð eftir leik liðanna. Getty

Upp úr sauð eftir leik erkifjendanna Galatasaray og Fenerbahce í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Galatasaray fór á topp deildarinnar með 2-1 sigri.

Tvö mörk Nígeríumannsins Victor Osimhen dugði Galatasaray fyrir 2-1 sigri og liðið er eftir hann með 22 stig á toppi deildarinnar en Fenerbahce situr eftir í fimmta sæti með 16 stig eftir níu leiki.

Leikurinn leystist hins vegar upp í ringulreið og fjöldaslagsmál í leikslok í Istanbúl í gærkvöld.

Starfsmenn neyddust til að hlaupa inn á völlinn þegar leikmenn Fener fengu útrás fyrir reiði sinni eftir 2-1 tap í slag erkifjendanna.

Myndskeið af Abdulkerim Bardakci, fyrirliða Gala, að draga leikmenn sína í burtu hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla eftir að Kerem Akturkoglu, leikmaður Fenerbahce, lenti í átökum í leikslok.

Akturkoglu var umsvifalaust haldið aftur á meðan aðrar ryskingar brutust út á milli miðjumannsins Matteo Guendouzi og starfsmanns Galatasaray.

Þetta dró að sér fjölda leikmanna og jafnvel öryggisverði leikvangsins, og í þriðju átökunum sást Englendingurinn Archie Brown taka Bardakci hálstaki áður en hann var dreginn í jörðina.

Gengið hefur á ýmsu hjá Fenerbahce á leiktíðinni. Upp úr sauð eftir leik liðsins við Lyon í forkeppni Meistaradeildarinnar þar sem bæði Mason Greenwood og Matteo Guendouzi voru dæmdir í bann fyrir bendingar sínar í átt til stuðningsmanna Lyon. Þeir voru áður leikmenn Marseille, erkifjenda Lyon.

Þá sagði Ismail Kartal, þjálfari liðsins, upp störfum eftir 1-1 jafntefli við Roma í fyrstu umferð deildarkeppninnar í Meistaradeildinni. Forseti félagsins hafnaði uppsögninni og Kartal enn að störfum hjá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×