Fótbolti

Gæti farið í sex leikja bann

Valur Páll Eiríksson skrifar
Neymar gæti fengið sex leikja bann fyrir að rífa kjaft.
Neymar gæti fengið sex leikja bann fyrir að rífa kjaft. Getty

Brasilíumaðurinn Neymar gæti farið í sex leikja bann fyrir að hylja munn sinn meðan hann reifst við Rodrigo Nestor, leikmann Bahia, í leik liðsins við Santos um helgina.

Neymar fékk að líta beint rautt spjald fyrir athæfið en FIFA samþykkti reglubreytingu þess efnis síðasta haust eftir að Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid, sakaði Gianluca Prestianni, leikmann Benfica, um kynþáttaníð í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu.

Prestianni var fundinn sekur um að hafa níðst á Vinicius og fékk að launum sex leikja bann. Samhliða því ákvað FIFA að taka á því að leikmenn hyldu munn sinn meðan þeir ræddu við aðra leikmenn og gerðu athæfið refsivert.

„Við vorum bara að spjalla á miðjum vellinum, grínast og hlæja saman,“ sagði Neymar um atvikið.

„Ég rétti fram höndina til að taka í höndina á honum og hann kastaði boltanum í mig. Eftir það sagði hann ýmislegt við mig,“ sagði Nestor.

Neymar gæti séð fram á sex leikja bann vegna kjaftbrúksins við Nestor í leik helgarinnar samkvæmt erlendum miðlum. Málið verður tekið fyrir af aganefnd brasilíska knattspyrnusambandsins á morgun.

Santos á sex leiki eftir í deildarkeppninni og mun Neymar því missa af rest tímabilsins fari svo að hann fái hörðustu mögulegu refsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×