Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Andri Már Eggertsson skrifar 13. október 2026 21:00 Valur vann ellefu stiga sigur gegn Ármanni í Laugardalshöll 78-89. Valskonur voru 22 stigum yfir í hálfleik en heimakonur sýndu mikinn karakter og minnkuðu forskot Vals minnst niður í þrjú stig en Valskonur höfðu betur að lokum. Valskonur byrjuðu betur í Laugardalshöllinni. Það tók gestina tæplega fimm mínútur að komast í tíu stiga forystu og stuttu síðar neyddist Friðrik Hrafn Jóhannsson, þjálfari Ármanns, að taka leikhlé. Heimakonur enduðu á að gera síðustu tvær körfunnar í fyrsta leikhluta og minnkuðu muninn niður í átta stig. Diamond Battles opnaði síðan annan leikhluta á að setja niður skot og fá villu að auki. Þær bláklæddu héldu áfram að hamra járnið á meðan það var heitt og munurinn fór minnst niður í þrjú stig. Eftir því sem leið á annan leikhluta náðu Valskonur vopnum sínum á ný og skutu ljósin út. Friðrik Hrafn reyndi að taka hvert leikhlé á fætur öðru til að reyna stöðva blæðinguna en ekkert virkaði. Valskonur voru tuttugu og tveimur stigum yfir í hálfleik 28-50. Ármenningar sýndu karakter í seinni hálfleik og byrjuðu á að gera átta stig í röð. Jamil Abiad, þjálfari Vals, var ekki sáttur með Valsliðið og tók leikhlé eftir tæplega 90 sekúndur. Það var allt ofan í og eftir tæplega fimm mínútur hafði Ármann gert 20 stig. Valskonur voru ellefu stigum yfir þegar haldið var í síðasta fjórðung 56-67. Það var lygileg spenna í fjórða leikhluta. Heimakonur héldu áfram að minnka niður forskot Vals og í stöðunni 75-78 tók Jamil Abiad, þjálfari Vals, leikhlé þegar 3 mínútur voru eftir. Valskonur unnu að lokum ellefu stiga sigur 78-89. Atvik leiksins Edyta Ewa Falenzcyk, leikmaður Ármanns, minnkaði muninn niður í þrjú stig þegar innan við þrjár mínútur voru eftir og Valsarar tóku leikhlé í kjölfarið. Miðað við að Valsarar komust mest 25 stigum yfir var með ólíkindum að munurinn hafi aðeins verið þrjú stig á þessum tímapunkti. Stjörnur og skúrkar Þóranna Kika Hodge-Carr, leikmaður Vals, var virkilega öflug í kvöld og gerði 17 stig og tók 8 fráköst. Jónína Þórdís Karlsdóttir, leikmaður Ármanns, spilaði virkilega vel og setti niður stór skot sem hélt heimakonum inni í leiknum. Jónína endaði með 19 stig og tók 8 fráköst. Ármann lenti mest 25 stigum undir í fyrri hálfleik. Liðið sýndi karakter að koma til baka og gera þetta að jöfnum leik en á endanum var munurinn of mikil. Dómararnir Dómarar kvöldsins voru Davíð Kristján Hreiðarsson, Stefán Kristinsson og Bjarni Rúnar Lárusson. Þriðja liðið stóð sig virkilega vel í kvöld og þeir mega vera ánægðir með sína frammistöðu. Stemning og umgjörð Það er alltaf gaman að koma í Laugardalshöllina. Umgjörðin var til fyrirmyndar og það var allt til alls. Mætingin var allt í lagi en hægt að setja spurningarmerki við tímasetningu leiksins en allir aðrir leikir í umferðinni voru spilaðir í gær. Bónus-deild kvenna Valur Ármann Körfubolti