Körfubolti

„Náðum að auka tempóið í seinni hálf­leik“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson var sáttur við viðbrögð sinna leikmann við því sem farið var yfir í hálfleik. 
Jakob Örn Sigurðarson var sáttur við viðbrögð sinna leikmann við því sem farið var yfir í hálfleik.  Vísir/Guðmundur

Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, var sáttur við kafla í leik sinna manna þegar liðið bar sigurorð af Grindavík í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Seinni hálfleikurinn og tempóið þar hafi verið meira að hans skapi. 

„Mér fannst við flatir í fyrri hálfleik og fara niður á þann hraða sem þeir vildu hafa leikinn í. Það var ýmislegt sem pirraði mig líka í því hvernig við spiluðum vörn,“ sagði Jakob Örn að leik loknum.

„Við ræddum málin í hálfleik og það var allt annað að sjá liðið í seinni hálfleik. Við náðum stoppum í vörninni og boltinn flæddi hraðar og betur í sóknarleiknum. Við erum betri þegar tempóið er hærra í leikju og það sást bersýnilega í þessum leik,“ sagði Jakob Örn þar að auki.

„Það gladdi mig mikið að sjá leikmenn eins og Lars Erik og Reyni sem hafa verið að þróast og fá mikilvæga reynslu með KV koma inn og breyta leiknum hjá okkur til hins betra. Þeir komu með þann kraft sem þurfti til þess að keyra þetta áfram og sigla sigrinum í höfn,“ sagði hann.

„Varnarleikurinn var heilt yfir betri í þessum leik en þegar við mættum þeim í Meistarakeppninni og það er skref í rétta átt. Ég væri hins vegar til í að sjá heilsteyptari frammistöðu með meiri ákefð í næsta leik,“ sagði Jakob.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×