Upp­gjörið: Njarð­vík - Tinda­stóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Tindastóll er búið að vera sigursælt í Evrópukeppni í undirbúningstímabilinu.
Tindastóll er búið að vera sigursælt í Evrópukeppni í undirbúningstímabilinu. Ernir/Vísir

Tindastóll hóf tímabil sitt í Bónus deild karla í körfubolta á útisigri gegn Njarðvík í leik sem bauð upp á meiri spennu en menn bjuggust við fyrirfram. Lokatölur 77-85, átta stiga sigur Tindastóls sem hefur farið sigurför um ENBL deildina í upphafi tímabils og heldur nú uppteknum hætti hér heima í Bónus deildinni.

Leikurinn byrjaði á skotsýningu þar sem Sigtryggur Arnar Björnsson opnaði á þrist og næstu fjórar körfur leiksins sem fylgdu á eftir voru einnig þristar.

Tindastóll stakk snemma af og hlupu yfir Njarðvíkinga sem áttu í töluverðum vandræðum að elta frískt lið Tindastóls. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 15-26 Tindastól í vil.

Það var þó allt annað að sjá til liðs Njarðvíkur í öðrum leikhluta. Þeir mættu óhræddir og voru miklu grimmari en lið Tindastóls sem virtist taka fótinn algjörlega af bensíngjöfinni eftir öflugan fyrsta leikhluta.

Njarðvík náði að tengja saman góða kafla og jafnaði leikinn þegar um mínúta var til hálfleiks. Gestirnir frá Sauðárkróki náðu þó aftur forystu og fóru inn í hálfleikinn tveimur stigum yfir 42-44.

Það voru um tvær mínútur liðnar af seinni hálfleiknum þegar ömurlegur atburður átti sér stað en Adomas Drungilas stökk þá upp í skot undir körfunni en missteig sig hryllilega í lendingunni og strax ljóst að hann gat ekki haldið áfram leik.

Mikil barátta einkenndi leikhlutann og kraftur í Njarðvík sem náði forystu í fyrsta sinn síðan í fyrstu sókn. Tindastóll lét það þó ekki slá sig út og þeir náðu í fjögurra stiga forskot áður en leikhlutinn var úti 61-65.

Það var ljóst að það yrðu hart barist í fjórða leikhluta. Leikurinn var galopinn og beið bara eftir því hvort liðið myndi taka af skarið. Bæði lið fengu fullt af tækifærum en þetta var bara ekki að falla fyrir þau.

Tindastóll reyndist á lokum sterkari og setti stór skot á meðan þau voru ekki að detta hjá Njarðvík. Tindastóll fór að lokum með átta stiga sigur 77-85.

Atvik leiksins

Meiðsli Adomas Drungilas lita þennan leik svolítið. Ömurlegt þegar svona gerist. Stekkur upp og lendir hræðilega undir körfunni. Óskum honum að sjálfsögðu skjóts bata og vonumst til að sjá hann sem allra fyrst á gólfinu aftur.

Stjörnur og skúrkar

Taiwo Badmus var stigahæstur í liði Tindastóls í kvöld með 18 stig. Júlíus Orri Ágústsson átti svo mikilvægar körfur á köflum og endaði með 15 stig. Ade Murkey og Bost áttu svo flottar rispur. 

Hjá Njarðvík var Spencer Svejcar atkvæðamestur með 23 stig. Hann var að setja stór skot fyrir Njarðvík. Brynjar Kári Gunnarsson átti svo flottan leik líka fyrir Njarðvík en hann endaði með 12 stig.

Dómararnir

Kristinn Óskars, Jóhannes Páll og Sófus Máni sáu um flautuna í kvöld. Alls ekki gallalaust hjá teyminu í kvöld og ætla ekki að taka undir allar þeirra ákvarðanir í kvöld en línan sem þeir settu stóðst að mestu og helstu ákvarðanir sennilega réttar.

Stemning og umgjörð

Það var þokkalegasta stemning í IceMar höllinni í kvöld. Umgjörðin í IceMar höllinni er alltaf upp á 10! Poppvélin var í gangi svo spenntir áhorfendur gátu sokkið í popppokan þegar spennan var sem mest.

Viðtöl

Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari NjarðvíkurGuðmundur/Vísir

„Svekktur því mér fannst þetta vera leikur sem við hefðum geta tekið“

„Við ætluðum að koma að meiri krafti inn í leikinn“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkinga eftir tapið í kvöld.

„Við erum mjög ragir eiginlega bara allan fyrsta leikhluta og erum bara aumir og látum ekkert finna fyrir okkur“

„Mér fannst Tindastóll gera bara svolítið það sem þeim langaði til en eftir fyrsta leikhluta þá kom allt önnur harka í þetta og allt annað stig af einhverri ákefð og ég var mjög ánægður með það“

„Leikurinn er svo bara í jafnvægi. Tindastóll oftar en ekki einhverjum fimm, sex upp og við erum að saxa þetta niður“

„Ég er svo kannski bara mest svekktur með að það er þriggja stiga munur hérna og við náum fullt af stoppum en einhvernveginn þorum ekki að vinna leikinn á sóknarenda vallarins og erum þar ekki alveg að finna hvert við viljum leita og erum að tapa boltanum klaufalega oft á tíðum í fjórða leikhluta“

„Ég er svolítið svekktur bara því mér fannst þetta vera leikur sem við hefðum geta tekið en að sjálfsögðu þá er þetta bara fyrsti leikur og ég þarf einhvernveginn bara að sjá sólina og horfa í jákvæðu hlutina og taka þetta með okkur inn í næstu viku“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira