Körfubolti

„Þetta eru al­vöru her­menn“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Baldur Þór Ragnarsson skerpir á hlutunum með sínum mönnum á hliðarlínunni í kvöld.
Baldur Þór Ragnarsson skerpir á hlutunum með sínum mönnum á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Diego

„Við spiluðum mjög vel hérna í dag,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Álftaness, eftir öruggan 34 stiga sigur liðsins gegn Hetti í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld.

Baldur og hans menn þurftu einn leikhluta til að koma sér almennilega í gang og eftir það var ekki aftur snúið.

„Við spiluðum vel á báðum endum vallarins þannig að ég er mjög sáttur með þennan sigur,“ bætti Baldur við.

Álftnesingum er spáð deildarmeistaratitlinum af formönnum, fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar, en þrátt fyrir það er alltaf ákveðin óvissa að hefja nýtt tímabil. Hann segist hafa fengið svör við mörgum af þeim spurningum sem hann hafði fyrir leikinn.

„Já, maður fær auðvitað einhver svör í hverjum leik. Þetta var bara góð frammistaða. Varnarleikurinn, ákefðin og menn að spila boltanum saman. Þetta var góð frammistaða í dag. Harka og gæði.“

Þá segir hann það greinilega vera góðs viti að fá leikmenn frá Lettlandi, en Lettinn Martin Laksa skilaði 21 stigi fyrir Álftanes í kvöld í sínum fyrsta deildarleik fyrir liðið.

„Höldum bara áfram að koma með leikmenn frá Lettlandi til Íslands. Þetta eru alvöru hermenn.“

Að lokum fór Baldur mjög lauslega yfir hvað liðið myndi gera á næstu dögum til að undirbúa sig fyrir næsta deildarleik, sem er gegn ÍR í næstu viku.

„Ég bara þarf að skoða það þegar þeir spila. Svo er þetta bara áfram gakk. Við þurfum að fara yfir hvað það er sem þeir eru góðir í. Við förum yfir þennan leik og tökum lærdóm af hlutum. Svo er þetta bara einn dagur í einu,“ sagði Baldur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×