Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Sindri Sverrisson skrifar 13. október 2026 18:39 Hákon Arnar Haraldsson í kröppum dansi gegn Ezri Konsa í London í kvöld. Getty/Jacques Feeney Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille urðu að sætta sig við 3-0 tap gegn Englandsmeisturum Arsenal í London í kvöld, í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Hákon var á sínum stað í byrjunarliði Lille í kvöld og var nálægt því að leggja upp mark en það var dæmt af vegna rangstöðu. Staðan var markalaus eftir klukkutíma leik en Jurrien Timber braut ísinn á 64. mínútu og í kjölfarið hleypti Mikel Arteta þeim Martin Ödegaard, Bukayo Saka og Kai Havertz inn á völlinn. Saka lagði í kjölfarið upp mark fyrir Eberechi Eze og Havertz lagði svo upp mark fyrir Saka en öll þrjú mörk Arsenal komu á aðeins sjö mínútna kafla. Arsenal hefur þar með unnið fyrstu tvo leiki sína í keppninni en Lille tapað sínum fyrstu. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Arsenal FC Íslendingar erlendis Fótbolti