Fótbolti

Jóhann Berg pirraður eftir aga­brot lands­liðs­manna

Aron Guðmundsson skrifar
Jóhann Berg í einum af þeim 100 landsleikjum sem hann spilaði fyrir Íslands hönd á glæstum ferli.
Jóhann Berg í einum af þeim 100 landsleikjum sem hann spilaði fyrir Íslands hönd á glæstum ferli. Getty/Filip Filipovic

Jóhann Berg Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í fótbolta, tjáði sig um agabrot nokkurra landsliðsmanna milli leikja í nýafstöðnu landsliðsverkefni í Þjóðadeildinni. Um óheppilegt mál sé að ræða.

Eins og greint var frá á dögunum gerðust einhverjir leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta sekir um agabrot í nýliðnum landsliðsglugga. Starfsmenn landsliðsins hafa fundað vegna málsins. Ku áfengi verið haft um hönd.

Jóhann Berg, sem lagði nýverið knattspyrnuskóna á hilluna eftir farsælan atvinnu- og landsliðsmannaferil, sagði að áður fyrr hefði það verið algengara í landsliðsverkefnum að menn væru þyrstir og hefðu fengið sér í glas.

Tekið hefði verið fyrir allt slíkt þegar Lars Lagerback tók við liðinu, ekki bara meðan á verkefninu stóð, heldur líka strax eftir það.

Af orðum Jóhanns Bergs að dæma hefur verið slakað á taumnum hvað þetta varðar síðan þá. Menn hafi fengið leyfi til að fá sér eitt og eitt rauðvínsglas eftir síðasta leik í verkefni og skála þegar vel gengur.

„Auðvitað er þetta óheppilegt. Þeir fá frí þarna um kvöldið og einhverjir greinilega fara og fá sér, ég veit sjálfur ekki nákvæmlega hvað gerðist. Þeir töluðu um þetta innan hópsins, að þetta væri ekki nógu gott,“ sagði Jóhann Berg í nýju hlaðvarpi sem hann kemur að og ber nafnið Sjöan.

Ekki bætir úr skák að næsti leikur á eftir, gegn Eistlandi á útivelli, hafi verið lélegur af Íslands hálfu en honum lauk með markalausu jafntefli.

„Í þessum nútímafótbolta væri best að sleppa áfenginu milli leikja, sérstaklega þegar þú ert búinn að spila þrjá leiki á stuttum tíma. Það er þá kannski hægt að fá sér einn eða tvo eftir síðasta leikinn. Pirringurinn hjá mér liggur þar að ég hefði viljað sjá menn koma alveg brjálaða inn í þennan leik við Eistland, sýna að þetta hafi ekki haft áhrif. En sá leikur var bara mjög lélegur og þetta hjálpar ekki neinum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×