Ís­land - Króatía 5-0 | Ís­lensk ein­stefna á Laugar­dals­velli

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir og Smári Jökull Jónsson skrifa
Glódís Perla Viggósdóttir lék sinn 150. A-landsleik og fékk flottan sigur í tilefni af tímamótunum.
Glódís Perla Viggósdóttir lék sinn 150. A-landsleik og fékk flottan sigur í tilefni af tímamótunum. vísir/Anton

Ísland er komið áfram í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári eftir samanlagðan 9-0 sigur í einvígi gegn Króatíu. Ísland vann 5-0 sigur á Laugardalsvelli í kvöld og mætir að öllum líkindum Portúgal í úrslitum þar sem sæti á HM verður undir.

Fyrir leikinn í dag fékk fyrirliðinn, Glódís Perla Viggósdóttir, viðurkenningu frá KSÍ en hún var að leika sinn 150. landsleik í kvöld.

Glódís Perla tekur við viðurkenningunni úr hendi Þorvalds Örlygssonar, formanns KSÍ.Vísir/Anton Brink

Ef einhverjir höfðu áhyggjur af því að stelpurnar okkar myndu mæta værukærar til leiks í kvöld, eftir stórsigurinn í Króatíu á föstudag, þá flugu þær áhyggjur út um gluggann strax í byrjun. Íslenska liðið mætti grimmt til leiks frá fyrstu mínútu og gaf því króatíska varla tækifæri til að draga andann.

Líkt og sást á föstudag eru stelpurnar okkar einfaldlega mun betri í fótbolta en stöllur þeirra frá Króatíu og það sýndu þær aftur í kvöld.

Ída Marín Hermannsdóttir skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og lagði upp mark í fyrri hálfleiknum.vísir/Anton

Strax á fyrstu mínútunum komst íslenska liðið í hættulegar stöður og Ída Marín Hermannsdóttir var afar nálægt því að koma Íslandi í 1-0 þegar hún skaut yfir úr dauðafæri á 12. mínútu og nokkrum sekúndum síðar var Hlín Eiríksdóttir skyndilega alein á markteignum en skallaði fyrirgjöf Sveindísar Jane Jónsdóttur boltann beint á markvörð Króata.

Tvö sannkölluð dauðafæri fóru í súginn en íslenska liðið hélt áfram og fyrsta markið kom ekki svo löngu síðar. Þá fékk Hlín frábæra sendingu inn fyrir vörn Króata frá Ídu Marín og náði að koma boltanum fram hjá markverði gestanna. 

Ísinn var brotinn og áfram hélt einstefnan.

Hlín Eiríksdóttir fagnar eftir að hafa komið Íslandi í 2-0.Vísir/Anton Brink

Fimm mínútum eftir mark Hlínar komst Sveindís Jane upp hægri kantinn og fann Ídu Marín í teignum sem skoraði með frábæru skoti. Þetta var fyrsta landsliðsmark Ídu Marínar sem lék á als oddi í fyrri hálfleiknum, með marki og stoðsendingu.

Síðari hálfleikurinn þróaðist nánast eins. Ísland var með boltann öllum stundum og króatíska liðið virtist bara vera að bíða eftir því að leikurinn myndi klárast. 

Þjálfari gestanna gerði þrefalda skiptingu snemma í síðari hálfleiknum en áhrifin voru öfugt við það sem hann eflaust vonaðist eftir því aðeins mínútu síðar kom Katla Tryggvadóttir Íslandi í 3-0 með góðu skoti úr teignum. Þetta var fyrsta landsliðsmark Kötlu sem átti fínan leik á miðjunni í dag.

Katla Tryggvadóttir fagnar sínu fyrsta landsliðsmarki.Vísir/Anton Brink

Eftir þetta gerðu bæði lið nokkrar breytingar sem höfðu aðeins áhrif á flæði leiksins. Ísland hélt þó áfram að sækja en króatíska liðið átti sína fyrstu snertingu í teig íslenska liðsins þegar um tíu mínútur voru eftir. Það segir allt sem segja þarf.

Markaskorun Íslands var þó ekki lokið því á síðustu mínútunum skoraði varamaðurinn Diljá Ýr Zomers tvö keimlík mörk. Í fyrra skiptið fékk hún sendingu frá öðrum varamanni, Líf Joostdóttur Van Bemmel, og potaði boltanum inn við fjærstöngina og í seinna markinu var það þriðji varamaðurinn, Birta Georgsdóttir, sem kom honum til Diljár sem skoraði. 

Frábær innkoma varamannanna og 5-0 sigur Íslands staðreynd.

Ísland fer því örugglega áfram í úrslit umspilsins og færist hænufeti nær sæti á HM í Brasilíu. Þar munu þær að öllum líkindum mæta Portúgal í tveimur leikjum, fyrst úti þann 26. nóvember og síðan heima þann 5. desember.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira