Körfubolti

Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“

Aron Guðmundsson skrifar
Björgvin gerir allt fyrir körfuboltann á Höfn.
Björgvin gerir allt fyrir körfuboltann á Höfn. Vísir

Björgvin Erlendsson, einn af prímusmótorunum á bakvið körfuboltastarfið á Höfn í Hornafirði, hefur fulla trú á því að sitt lið muni standa sig í frumrauninni í efstu deild. Björgvin sló í gegn strax í fyrstu umferð og er búinn að heilla sérfræðinga Körfuboltakvölds.

„Við erum búin að missa humarinn, jöklarnir eru að bráðna. Okkur vantar eitthvað til þess að samsvara okkur við. Ég held að körfuboltinn sé svarið,“ sagði Björgvin Erlendsson, stjórnarmaður hjá Sindra sem hefur lyft grettistaki í tengslum við körfuboltann á Höfn í Hornafirði til margra ára.

Klippa: Stal senunni á Höfn

Sindri er að spila í efstu deild í körfubolta í fyrsta sinn í sögunni. Liðið tapaði fyrsta leik sínum á tímabilinu á heimavelli gegn ÍR en Björgvin hefur ekki áhyggjur af framhaldinu.

„Við erum að fara „all-in“. Erum ekki að fara að vera liðið sem næstum því vinnur leik í vetur. Við munum gera það sem þarf að gera. Ætlum að vera liðið sem stelur leikjunum. Ég hef engar áhyggjur af þessu. Þetta var bara sviðskrekkur hér á móti ÍR. Næsti leikur er í Keflavík, við erum vanir að spila í rigningu. Við erum klárir,“ sagði hnyttinn Björgvin.

Það er ljóst að Björgvin lifir fyrir körfuboltann á Höfn og vakti hann athygli á meðan á leik stóð gegn ÍR líkt og sjá má í spilaranum hér ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×