Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Árni Sæberg skrifar 6. október 2026 14:52 Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis. Vísir/Arnar Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, og Fanney Kr. Hermannsdóttir, eiginkona hans, opna á morgun, miðvikudaginn 7. október klukkan 16:30, nýsköpunar- og þekkingarsetrið Arctell Sandvík að Neshaga 16 í Reykjavík.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að opnunin sé hluti af fordagskrá Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle, sem hefjist formlega á fimmtudag. Ólafur Ragnar kemur fram Meðal framsögumanna við opnunina verði Guðmundur Fertram, Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, og Sigurbjörn Þorkelsson, stjórnarformaður Amaroq. Arctell Sandvík sé vettvangur fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf. Þar sé aðstaða fyrir sprotafyrirtæki, aðila sem starfa að rannsóknum og alþjóðasamstarfi sem og þjónustufyrirtæki sem tengist slíkri starfsemi. Í setrinu verði einnig haldnir viðburðir þar sem fjallað verði um fjárfestingar, nýsköpun, þróun norðurslóða og önnur málefni. Annað setur í Kaupmannahöfn og stefnt að fleirum Setrið sé annað nýsköpunar- og þekkingarsetur Arctell. Það fyrsta hafi verið opnað í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði. Fleiri setur séu fyrirhuguð, meðal annars á Ísafirði og í Nuuk á Grænlandi. Að baki setrunum standi Arctell ehf., sem Guðmundur Fertram og Fanney Kristín hafi stofnað ásamt samstarfsfólki. Arctell vinni að nýsköpun og fjárfestingum á norðurslóðum. Markmiðið sé að tengja saman frumkvöðla, vísindamenn og fjárfesta, efla alþjóðlegt samstarf og styðja við uppbyggingu fyrirtækja sem geta vaxið á alþjóðlegum mörkuðum. „Á norðurslóðum eru mikil tækifæri til vaxtar og nýsköpunar. Með því að tengja frumkvöðla og vísindamenn í fremstu röð, þekkingu heimafólks, fjármagn, samstarfsaðila og alþjóðleg tengslanet getum við fangað þessi tækifæri og byggt upp öflug fyrirtæki sem nýta sérstöðu norðurslóða og skapa verðmæti til framtíðar,“ er haft eftir Guðmundi Fertram.
Nýsköpun Reykjavík Hringborð norðurslóða Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Ummæli Ásgeirs um leigubremsu „fullkomlega óábyrg“ Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira