„Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Jakob Bjarnar skrifar 5. október 2026 11:47 Óhætt er að það fari um margan aðdáanda Davíðs Oddssonar við þær fréttir að þeir feðgar Reynir og Jón Trausti hafa nú ritað bók um feril hans og valdatíð. vísir/samsett Blaðafeðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson hafa ritað bók um Davíð Oddsson. Bókin er komin í prentsmiðju en hún var skrifuð á síðasta hálfa ári. Hætt er við að það fari um margan aðdáanda Davíðs við þessar fréttir. „
Ég staðfesti þetta. Davíðstíminn – sjálfstæð saga lands og leiðtoga. Þetta er 490 síðna bók, „ballanseruð“ frásögn af þessum valdatíma þar sem rauði þráðurinn er Davíð. Við skoðuðum feril hans í þaula,“ segir Reynir. Um er að ræða veglega bók þar sem farið er yfir valdatíð Davíðs og víst er að af nægu er að taka. Bókin er væntanleg eftir þrjár vikur. „Við byrjuðum síðla síðasta vetrar og enduðum núna. Þetta hefur verið mikill sprettur. Auðvitað áttum við eitt og annað af gögnum af þessum ágæta leiðtoga en aðalvinnan fór fram núna í sumar og síðustu setningarnar komu fyrir tíu dögum. Þetta er jafnvægi, gamansögur, húmorinn og harkan. Sagan öll,“ segir Reynir. Hann leggur upp úr því að bókin sé unnin faglega, þótt ekkert sé dregið undan. „Þetta er ekki bók sem fellir dóma, hvorki neikvæða né jákvæða. Hver dregur sínar ályktanir. Þetta er maður sem er á valdastóli öll þessi ár, borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og síðasta baráttan um forsetastólinn.“ Davíð var ekki óumdeildur maður? „Nei, hann var mjög umdeildur, sem gerir hann áhugaverðan og söguna hans. Samhliða er þetta samtímasaga sem hann á stóran þátt í að skapa; frjálshyggjan kemst til valda og hvað gerist þá? Hann er víða í lykilhlutverki, meðal annars sem seðlabankastjóri í bankahruninu. Það má segja að hann sé maðurinn á bak við alla þessa einkavæðingu og þessi skref sem sumir kalla til frjálsræðis.“ Lengstum sigurvegari Reynir segir rétt að það hafi farið um ýmsan manninn þegar þeir höfðu samband til að leita upplýsinga. „En ég held að það hafi komið mönnum á óvart hversu raunsönn sagan er um völd hans og áhrif. Ég held að vandfundinn sé sá einstaklingur sem hefur haft meiri áhrif frá stofnun lýðveldisins. Menn geta tínt einhverja til, Óla Thors eða einhverja, en að mínu mati er enginn sem kemst í hálfkvisti við hann. Það var virkilega gaman að vinna þetta, maðurinn er húmoristi og það eru margar góðar sögur sem verður að finna í bókinni, fyrir utan sigrana og ósigrana.“ Eitt af þeim málum sem Reynir ritaði og tengist Davíð, umboðsmannsmálið. Þessi frétt birtist 22. maí 2004. Reynir sjálfur hafði persónulega reynslu af samskiptum við Davíð en Davíð hefur lýst því hreykinn hvernig hann útilokaði suma fjölmiðla og fjölmiðlamenn, sem mörgum í blaðamennsku þykir sérkennileg afstaða. „Við kynntumst því á DV. Hann lokaði á okkur 2002, þar til Óli Björn Kárason kom til sögunnar og DV varð besti vinur Valhallar. En það er alveg rétt og þar birtist hann okkur þessi merkilegi maður, þetta er ólgandi eðli listamannsins sem svo blandast saman við þennan klóka pólitíkus sem kunni tímasetningar. Hann var sigurvegari lengst af en, eins og þú segir, umdeildur.“ Davíð í slagsmálum við fjölmiðla Reynir var með nokkrar fréttir sjálfur sem sneru að Davíð og hann segir athyglisvert, þegar farið er aftur í tímann og því slegið upp, hversu DV var upplýsandi um margt sem var að gerast og hann nefnir Umboðsmannsmálið, þar sem DV var í lykilhlutverki. „En aðrir hóstuðu ekki upp úr sér svo mikið sem einni setningu. Þarna eru sigrarnir, átökin, harkan og manngæskan. Við vorum ágætir mátar þar til 2002. Hann lýsti því yfir að hann vildi gjarnan hafa mig í vinnu ef ég væri ekki svona mikið ólíkindatól.“ Fjölmörg mál önnur eru í deiglunni, svo sem Baugsmálið, en stjórn Baugs óttaðist þá afskipti forsætisráðherra, að hann vildi knésetja fyrirtækið. Reynir segir marga úr innsta hring hafi kváð þegar hann upplýsti þá um að hann væri að skrifa bók um Davíð Oddsson.vísir/vilhelm „Þetta var þegar Hreinn Loftsson og hann hittust í London og mútusagan fór á flug, um að Jón Ásgeir Jóhannesson vildi kaupa sér frið með því að greiða Davíð 300 milljónir. Þá varð mikið fjölmiðlafár sem reyndist svo hluti af því hvers vegna hann missti völd sín.“ Varla útgáfupartí í Valhöll Enn berst talið að væntanlegri óánægju þeirra sem hafa Davíð í guðatölu. Reynir hlær og segir rétt að ýmsir í innsta hring hafi hváð þegar þeir feðgar leituðu til þeirra. „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll en þetta mun koma mörgum á óvart og er okkar innlegg í að halda þessari sagnfræði til haga. Líta um öxl og niðurstaðan er sú að klárlega er þetta stórmenni í íslenskri pólitík, svo þarf fólk að meta hvar honum voru mislagðar hendur. Át byltingin börnin sín? Jón Ásgeir, Jón Ólafsson, Kaupþingsmenn … listinn heldur áfram, komust allir til áhrifa vegna þess að Davíð ruddi brautina en svo var talað um óreiðumenn þegar í harðbakkann sló, í bankahruninu.“ Reynir leggur áherslu á að bókin sé unnin samkvæmt bestu vitund, faglegum vinnureglum blaðamennskunnar og er öllum tilvísunum haldið til haga.
Bókaútgáfa Andlát Davíðs Oddssonar Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Ummæli Ásgeirs um leigubremsu „fullkomlega óábyrg“ Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira