Vill breyta umdeildum gatnamótum Bjarki Sigurðsson skrifar 5. október 2026 10:38 Ari Edwald er oddviti Miðflokksins í borginni. Vísir/Sigurjón Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor.
Í fyrrasumar voru gerðar umfangsmiklar breytingar við fimm gatnamót Höfðabakka til að bæta umferðaröryggi og aðgengi vegfarenda. Meðal annars voru svokölluð hægribeygjuframhjáhlaup fjarlægð af gatnamótunum við Bæjarháls, þar sem íbúar Árbæjar og Ártúnsholts beygja inn í hverfin sín. Miklar umferðartafir hafa verið á svæðinu síðan breytingin var gerð og í raun lá fyrir að svo yrði. Verkfræðistofan Cowi vann skýrslu í aðdraganda breytinganna sem sýndu að yrðu framhjáhlaupin fjarlægð yrði umferðin þyngri. Hér fyrir neðan má sjá klippta vefsjónvarpsútgáfu af þessari frétt. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins og fulltrúi flokksins í umhverfis- og skipulagsráði, segir breytingarnar hafa verið misráðnar. „Þær voru ekki kynntar fyrir þeim sem tóku ákvörðunina, skýrslur verkfræðinga sem lágu fyrir frá því í desember árinu áður. Þar kom fram að þetta myndi hafa miklar umferðartafir í för með sér og það var vaðið í þessar breytingar sem orsökuðu hér mikið umferðaröngþveiti. Það er ekki þannig að það hafi aukist umferð bíla um gatnamótin því að hluti af bílunum hefur leitað annað og inn á aðrar götur. Samt er meira öngþveiti hér sem sýnir vel hversu illa undirbúnar þessar ráðstafanir voru,“ segir Ari. Lengri akreinar og nýr beygjuvasi Hann lagði í sumar fram tillögu þess efnis að skipulagið yrði í raun fært til baka. Nú hefur hann hins vegar dregið þá tillögu til baka eftir að Cowi gaf út nýja skýrslu um svæðið. Fulltrúar meirihlutaflokkanna lögðu fram sína eigin tillögu í takt við niðurstöður skýrslunnar og ákvað Ari að ganga til liðs við meirihlutann í þessu máli. „Þá er gert ráð fyrir því að fallast á og nýta þessar tillögur allar, en bæta síðan við það hægri beygju framhjáhlaupi frá Bæjarhálsi og norður Höfðabakka, sem er mjög mikilvægt. En einnig vegna þess að til framtíðar er talið að hér verði mikilvægur tengipunktur í göngu- og hjólastígakerfi borgarinnar, að það verði skoðað að gera hér ný undirgöng sem tengi saman þá stíga. Það er ekki þannig að hér sé í dag mikil umferð gangandi og hjólandi og lungað af þeirri umferð fer um undirgöng sem eru hérna aðeins sunnar,“ segir Ari. Lagt er til að gatnamótin muni líta svona út eftir breytingu auk þess að bætt verður við hægribeygjuframhjáhlaupi frá Bæjarhálsi til norðurs inn á Höfðabakka, líkt og var fyrir breytingu.COWI Greið umferð ekki ofarlega á listanum Umferðarþunginn á svæðinu hafi áhrif á íbúa víða um borgina. Gangi tillagan eftir hefjast framkvæmdir vonandi í vor. Hann gagnrýnir verk fyrri meirihluta. „Það er ekkert hægt að neita því að það hafi verið hérna mikið prógramm í gangi að taka burt akreinar og bílastæði, þrengja að umferð. Án þess að ég sé með einhverjar ásakanir um ásetning í garð þeirra sem hafa komið að þessari framkvæmd, þá er að minnsta kosti hægt að segja að það að umferð gangi greiðlega fyrir sig hafi ekki verið mjög ofarlega á forgangslistanum. Það bara virðist vera algjör afgangsstærð í hugum þeirra sem hafa komið að ákvörðun um þessar breytingar,“ segir Ari. Reiði meðal íbúa En hvernig er hljóðið í íbúum Árbæjar sem keyra hér daglega um eftir þessa umdeildu breytingu? „Það var gríðarleg reiði með þetta rugl hérna hjá íbúunum á svæðinu. Þetta einfaldlega steypti umferðinni og samgöngunum bara í hnút, sem hafði ekki verið áður,“ segir Ari. „Og hérna rétt austan við okkur eru önnur gatnamót. Hraunbær, Bitruháls, Bæjarháls. Þau spila saman við þessi gatnamót og núna þegar þetta verður skoðað enn frekar í undirbúningi framkvæmdanna þá þarf að taka hönnun þeirra gatnamóta inn í myndina þannig að þetta spili saman.“ Umferðin mun þyngri Ari starfaði lengi hjá Mjólkursamsölunni sem stendur einmitt við Bitruháls og segist þekkja umferðina á svæðinu af eigin raun. „Þegar er verið að tala um að á háannatíma þurfi menn að bíða lengi, jafnvel 76 sekúndur að komast hérna í gegn. Ég hef alveg talið níu hundruð sekúndur hérna svona oftast þegar einhver traffík er,“ segir Ari.
Reykjavík Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Borgarstjórn Umferð Umferðaröryggi Skipulagsmál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Sjá meira