„Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Smári Jökull Jónsson skrifar 2. október 2026 13:00 Svala Jóhannesdóttir er formaður Matthildarsamtakanna, samtaka um skaðaminnkun. Vísir/Vilhelm Formaður Matthildarsamtakanna segir mikla aukningu hafa orðið í notkun vímuefnisins 4CMC bæði hér á landi og á Norðurlöndunum undanfarið. Aðaláhættan við notkun efna sem þessa sé að fólk viti ekki hvað það sé að innbyrða.
Á síðasta ári var greint frá nýju efni á vímuefnamarkaði hér á landi, efni sem kallað er 4-CMC, sem virðist nú vera búið að ná fótfestu. Adam Erik Bauer, réttarefnafræðingur, hefur rannsakað leifar af vímuefnum sem finnast í skólpi landsmanna síðustu ár og hann segir í samtali við fréttastofu að til dæmis hafi greinileg aukning á notkun efnisins sést um verslunarmannahelgina. Svala Jóhannesdóttir, formaður Matthildarsamtakanna, segir efnið oftast selt undir nafninu Meþadrón. „4CMC er vímuefni sem er syntetískt [framleitt á tilraunastofu] sem þýðir að það er framleitt í raun ólöglega. Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi og á Norðurlöndunum síðustu ár og það er mikið verið að nota það í skemmtanalífinu,“ segir Svala í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Leita til Matthildarsamtakanna til að fá efnagreiningu Efnið, sem er yfirleitt kristallað eða í duftformi, er örvandi vímugjafi sem Svala segir að hafi áhrif á hjarta- og æðakerfið og hækki líkamshita. Hættan sé þó ekki á pari við notkun ópíóíða eða metamfetamíns. „Vímuefni sem eru framleidd ólöglega, aðalhættan með þau er að notandi veit aldrei nákvæmlega hvað hann er að innbyrða. Þess vegna hefur fólk sem hefur verið að nota mephedrone á Íslandi verið að leita til okkar í Matthildarsamtökunum, sérstaklega eftir að fá að efnagreina efnið þannig að það viti í raun innihald efnisins og mögulegan styrkleika áður en það notar það.“ „Langstærsti vímugjafinn er áfengi“ Á vegum Matthildarsamtakanna hefur svokallað Matthildarteymi verið starfrækt í þrjú ár sem veitir skaðaminnkandi þjónustu í skemmtanalífinu, mætir á viðburði og býður skaðaminnkandi þjónustu, meðal annars hvernig fólk geti dregið úr áhættu á bráðatilfellum og ofskömmtun. Svala tekur fram að blöndun vímuefna, til dæmis áfengis ofan í notkun 4CMC eða MDMA, ýti undir hættu á slæmri reynslu og á bráðatilfellum. „Við sjáum að á síðustu tveimur árum hefur fólk verið að leita til okkar út af meþadróni sérstaklega. Bæði er verið að óska eftir ráðleggingum varðandi skammtastærðir og öruggari vímuefnanotkun en líka aðallega til þess að koma og efnagreina efnið.“ „Þannig að þetta er efni sem er nýlegt á Íslandi og við sjáum að fleiri í skemmtanalífinu eru að nota meþadrón. Aðalefnið sem fólk er að nota í dag í skemmtanalífinu er samt fyrst og fremst MDMA, ketamín, kókaín og langstærsti vímugjafinn er áfengi,“ segir Svala. „Við sjáum þessar tölur mjög klárlega í okkar þjónustu.“
Lyf Fíkn Heilbrigðismál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Ummæli Ásgeirs um leigubremsu „fullkomlega óábyrg“ Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira