Ein matskeið og þá er dauðinn vís Tómas Arnar Þorláksson skrifar 2. október 2026 09:11 Dr. Guðríður Eyjólfsdóttir segir að forðast skuli hinn banvæna galerina marginata. vísir/getty „Ég hef lesið það að ef menn borða sem samsvarar einni matskeið af soðinni eða eldaðri viðarkveif (galerina marginata) sem er lítill brúnn sveppur sem er oft í kurlbornum göngustígum, þá er dauðinn nokkuð vís.“
Þetta segir Dr. Guðríður Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, í samtali við Bítið í morgun. Sveppir spretta um allar koppagrundir um þessar mundir og því við hæfi að heyra frá einum helsta sveppafræðingi landsins um boð og bönn þegar kemur að sveppatínslu. Ógeðslega margar tegundir Áhugi á sveppum hefur aukist í veldisvexti hér á landi undanfarin misseri eins og má bersýnilega sjá á Facebook-hópnum Funga Íslands. Guðríður er stjórnandi í umræddum hópi og segir aukinn áhuga ekki koma á óvart. „Ég held að þetta sé til komið út af þetta mjög góð ástæða til að ganga um í náttúrunni og skoða sig um. Sumir eru í svona núvitund og svoleiðis. Þegar ég var barn að þá bjó ég við ströndina þannig að ég lék mér í fjöru. Þegar ég var á áttunda ári, þá fluttum við upp í sveit og tókum við búi þar og ég hef verið sveitastúlka,“ segir hún og heldur áfram: „Og þá situr maður kannski einhvers staðar á þúfu stöku sinnum og litast um í umhverfinu en ég fór í líffræði eftir menntaskóla og ákvað á svona fimm mínútum að taka verkefni í sveppum til að athuga hvort að vísindastarfsemi ætti við mig. Ég fékk vinnu í tvö sumur við fagið við að einangra jarðvegssveppi úr tilraunareitum. Síðan fékkst ég við það í fjögur ár og í framhaldi af því fór ég í nám til Kanada í faginu.“ Guðríður tekur fram að sveppirnir eru jafn margir og þeir eru fjölbreyttir. Hún fái jafnvel ábendingar um nýjar tegundir á Facebook-hópnum sem hún heldur úti. „Þeir eru líka ógeðslega margir. Það eru svona tvær og hálf milljón tegunda í heiminum. Það er aðalspennan í þessu. Þetta heldur manni gangandi allt sumarið,“ segir hún og tekur fram að alþjóðlegt félag sveppafræðinga hafi rætt það á dögunum að ekki væri hægt að hafa fólk í embættisstöðum eða við stjórnvölinn án þess að vita neitt um sveppi. „Fólk á sveitarstjórnarstiginu til dæmis þarf að taka ákvarðanir um friðun landsvæða. Sveppir eru dálítið stór hluti þó það sjáist ekki mikið af þeim. Þess vegna ættu sveppafræðingar um allan heim að líta til þess hvort þeir gætu ekki uppfrætt almenning um sveppi almennt séð,“ segir hún og tekur fram að vegna þessa hafi henni dottið í hug að stofna Facebook-hóp utan um umræðu um sveppi. Mikið spurt og ritað um ofskynjunarsveppi Nú er svona árstíminn þar sem að það eru að flykkjast inn nafnlausar myndir og spurningar um hvort að þarna séu ofskynjunarsveppir á ferð. Það vakti svolítið athygli mína að þú hefur tekið hlýlega í þessar beiðnir og verið að upplýsa fólk um hvaða tegundir þetta séu svo fólk fari sér ekki að voða. „Ég hef í gegnum tíðina verið að reyna að greina sveppi sjálf og ég hef greint trjónupeðlu nokkrum sinnum. Það er eini sveppurinn sem vex hér með almennilegt ofskynjunarefni í. Það er víst einn annar sem er með þetta en ég held að það fari eitthvað lítið fyrir honum. Þetta er fyrst og fremst þessi eina tegund og hann er lítill,“ segir hún og tekur fram að sveppurinn spretti upp í graslendi. Guðríður segir það smá ergilegt hve mikill tími og áhersla fer í að ræða ofskynjunarsveppi og matsveppi. Það sé smá einhæft en áhugi á tilteknum sveppum komi og fari eins og um tískubylgju sé að ræða. Hún segir þó mikilvægt að sýna aðgát þegar kemur að sveppum. „Það er allavega einn frekar algengur sveppur sem er banvænn, ég hef lesið það að ef menn borða sem samsvarar einni matskeið af soðinni eða eldaðri viðarkveif (galerina marginata) sem er lítill brúnn sveppur sem er oft í kurlbornum göngustígum að þá dauðinn nokkuð vís eða allavega líffæraskipti. Þetta eyðileggur lifur eða nýru aðallega kannski,“ segir hún og heldur áfram: „Hann er lítill og brúnn og það eru margir sem vita af honum. Hann er ekki eins frægur eitursveppur eins og berserkjasveppurinn en sá sveppur er töluvert minna eitraður og virkar á önnur kerfi.“
Sveppir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira