„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Smári Jökull Jónsson skrifar 1. október 2026 12:16 Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar, segir Kópavogsbæ hafa flýtt sér of mikið í tengslum við útboð stúku við Kórinn. Vísir/Vilhelm/Ívar Fannar Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir að útboð vegna byggingar stúku við Kórinn, sem nú hefur verið dæmt ólöglegt, beri öll merki þess að Kópavogsbær hafi flýtt sér of mikið við gerð þess. Engin tilviljun sé að fyrsta skóflustunga hafi átt að vera tekin daginn fyrir kjördag í vor.
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá málinu í færslu á Facebook og skrifar að kærunefnd útboðsmála hafi úrskurðað útboðið ólöglegt, fellt það úr gildi og skaðabótaskylda bæjarins verið viðurkennd. Til stendur að byggja áhorfendastúku með þjónustubyggingu á tveimur hæðum og fullbúnum upphituðum gervigrasvelli á svæðinu. Samningur vegna verksins er upp á rúma tvo milljarða króna og hafði Kópavogsbær ákveðið að ganga til samninga við ÞG Verktaka en samningagerð var stöðvuð í sumar af kærunefnd útboðsmála eftir að Ístak kærði niðurstöðu útboðsins. Setti kærunefndin meðal annars út á verklag matsnefndar. „Annar bjóðandinn [ÍSTAK] skilar nýju tilboði eftir athugasemdir frá bænum og lækkar síðan í stigagjöfinni. Þetta er svolítið eins og þú myndir fara með próf til kennara og fá endurgjöf og bregðast við endurgjöfinni og fá lægri einkunn. Það var talið ólögmætt,“ sagði Jónas Már í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Fyrsta skóflustunga var fyrirhuguð daginn fyrir kjördag Tekist var á um málið þegar það var afgreitt í bæjarstjórn í apríl. Meirihlutinn lét þá meðal annars bóka að matsaðferðafræði tilboða hefði legið skýrt fyrir. Jónas segir gagnrýni sína helst snúa að hraðanum á afgreiðslu málsins. Hann vilji alls ekki tala niður starfsfólk bæjarins sem hafi líklega þurft að vinna málið undir töluverðri pressu. „Það var náttúrulega mikið gert úr þessum áfanga í kosningunum hérna í vor, sérstaklega af Sjálfstæðisflokknum, myndbönd birt og barið sér á brjóst út af þessu máli. Tímalínan stillist þannig upp að það var verið að fara í skóflustungu degi fyrir kjördag. Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun,“ bætir Jónas Már við en hætt var við fyrirhugaða skóflustungu þar sem kæra vegna útboðsins hafði borist. Hann segir HK hafa bðið lengi eftir stúku við Kórinn og nú sé uppi óvissa um næstu skref. „Aðilar þurfa að sættast á einhverja niðurstöðu til að taka málið áfram eða þá bara byrja útboð upp á nýtt ef það er ekki í boði.“ Ekkert svar fengið frá Ásdísi bæjarstjóra Í færslu sinni á Facebook skrifar Jónas Már að ef fara þurfi með málið á byrjunarreit telji hann rétt að staldra við og endurskoða teikningar því hönnunin hafi í upphafi aðeins verið gerð með lágmarkskröfur mannvirkjareglugerðar KSÍ í huga. „Ég hef talað fyrir því og flutt tillögu í bæjarráði um að það verði starfshópur innan bæjarins og íþróttafélaganna þar sem fjárfestingargeta bæjarins er metin einhver ár fram í tímann. Og að sátt skapist um fjárfestingu til framtíðar þannig að hægt sé að nýta fjármuni bæjarins sem best.“ Tryggja þurfi eðlilega forgangsröðun og ekki endilega alltaf farið í ódýrasta kostinn til þess að hrósa sigri í aðdraganda kosninga. „Það eru mýmörg dæmi um hálfkveðnar vísur hér í bænum og þær duga síðan ekki alveg til þess sem þær eru ætlaðar og það er ekki góð nýting á fjármunum bæjarins.“ Jónas bar tillögu sína fram í bæjarráði í sumar og segist hafa gert það tímanlega svo hún gæti nýst í fjárhagsáætlanagerð sveitarfélagsins. Var tillögunni vísað til umsagnar bæjarstjóra í júlí. „Það hefur ekkert frést af þessu. Nú erum við á lokastigum fjárhagsáætlanagerðar og þessu hefur ekkert verið svarað,“ segir Jónas að lokum. Fréttin var uppfærð með leiðréttingu Jónasar Más Torfasonar um að fyrsta skóflustunga vegna stúkunnar hafi verið fyrirhugað daginn fyrir kjördag. Hætt var við þær áætlanir þar sem kæra vegna útboðsins hafði borist.
Kópavogur Skipulagsmál Sveitarstjórnarmál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira