Valgerður réttir fram sáttahönd Eiður Þór Árnason skrifar 30. september 2026 18:37 Valgerður Rúnarsdóttir hætti nýverið störfum sem framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ. Hún telur að það verði gott fyrir geðheilsuna að snúa aftur til vinnu. Vísir/Arnar Valgerður Rúnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, mun snúa aftur til starfa á föstudag. Hún segir um tímabundna ráðstöfun að ræða til að tryggja vinnufrið við endurskoðun samnings SÁÁ við Sjúkratryggingar.
Valgerður segir að það eigi ekki að skipta máli fyrir heilbrigðisþjónustuna hver er í félagsstjórn SÁÁ en margir starfsmenn hafa krafist afsagnar framkvæmdastjórnar og formanns. Valgerður vill sjá skýrari línur dregnar milli stjórna SÁÁ og heilbrigðisþjónustunnar. Hún sagði nýverið starfi sínu lausu eftir brotthvarf þáverandi forstjóra SÁÁ sem Valgerður sakar framkvæmdastjórn um að hafa bolað úr starfi. Þá hefur hún sakað sömu stjórn um óeðlileg afskipti af faglegri heilbrigðisstarfsemi SÁÁ. RÚV greindi fyrst frá endurkomu Valgerðar. Hún er sögð tímabundin. „Svo sjáum við í raun og veru hvernig stefna verður tekin. Það er ekkert komin nein tímasetning á það. Það er svo margt að gerast, það gerist eitthvað á hverjum degi,“ segir Valgerður í samtali við Vísi. Líkt og áður sé hún til í að draga uppsögn sína til baka ef ráðist verði í breytingar. Sagði upp eftir um tvær vikur Jón Áki Jensson geðlæknir tók við af Valgerði sem framkvæmdastjóri lækninga en hann sagði upp störfum um tveimur vikum eftir að hann var ráðinn til SÁÁ. Heilbrigðisstofnanir samtakanna hafa glímt við mikinn mönnunarvanda og hafa læknar á Sjúkrahúsinu Vogi verið í leyfi frá störfum. Jón sagði við Vísi í síðustu viku að hann væri eini starfandi sérfræðilæknirinn á Vogi. Spítalinn hefur ekki verið í fullri nýtingu og var lokað fyrir innlagnir í síðustu viku. Valgerður segist hafa boðið fram aðstoð sína í gær. Harðvítugar deilur hafa átt sér stað innan SÁÁ síðustu vikur milli stjórnenda og starfsfólks meðferðarsviðs annars vegar og formanns, framkvæmdastjórnar og aðalstjórnar SÁA hins vegar. Meðal annars er deilt um það hvaða afskipti stjórnir SÁÁ megi hafa af faglegu starfi sem fjármagnað er af Sjúkratryggingum. Þá eru starfsmenn ósáttir við brotthvarf Ragnheiðar Huldu Friðriksdóttur, þáverandi forstjóra. Vilja þeir meina að henni hafi verið bolað út eftir að hún veitti hugmyndum stjórnar um breytingar mótstöðu en formaður SÁÁ segir að Ragnheiður hafi sjálf sagt upp störfum. Mikilvægar breytingar í farvatninu „Það hefur margt gerst undanfarna daga. SÁÁ, [Sjúkratryggingar Íslands] SÍ og yfirvöld eru að tala saman um ákveðnar breytingar,“ segir Valgerður. „Það þarf að tryggja að það sé allt í góðu lagi í meðferðinni á meðan og ég ætla að leggja mitt af mörkum þar.“ Vel hafi verið tekið í það boð. „Það voru allir þakklátir því. Þetta er ekki búið að vera gott en það hafa orðið breytingar sem eru mikilvægar fyrir framtíðina,“ segir hún um stöðuna innan SÁÁ. Þar vísar Valgerður til þess að SÁÁ og Sjúkratryggingar hafi náð saman um að endurskoða samning sinn til að styrkja stjórnarhætti og skapa skýrari umgjörð um heilbrigðisþjónustu SÁÁ, líkt og það var orðað í yfirlýsingu. Valgerður telur að hlutaðeigandi aðilar þurfi nú frið til þess að klára þessa endurskoðun. Þá hafi forstjóri Landspítala lýst því yfir að starfsfólk hans sé tilbúið að styðja við meðferðarþjónustu SÁÁ ef á þarf að halda. Stjórnin eigi ekki að skipta hana miklu máli Gætir þú íhugað þér að draga uppsögnina til baka jafnvel þó að framkvæmdastjórnin myndi ekki stíga til hliðar? „Persónulega hef ég ekki sérstaka skoðun á því hver er í framkvæmdastjórn félagasamtakanna. Ég vil bara að það sé gott fólk sem vinni góða vinnu fyrir samtökin í heild. En að öðru leyti hefur það ekki bein áhrif á mín störf nema það sem hefur verið hingað til, sem sagt að þau hafi vald til þess að ráða og segja upp forstjóra. En það er svona verið að vinna í þeim breytingum þannig að ég hef ekkert einhverja persónulega skoðun á því hver situr í stjórninni,“ segir Valgerður. „Eins og var búið að ræða um þá var komið svolítið annað snið á það. Þau voru meira að hugsa um heilbrigðisþjónustuna og telja sig eiga að hafa mikið eftirlit með henni og allt þetta sem er búið að ræða svo mikið. En ef það verður skýrara hér eftir þá ætti það ekki að skipta neinu máli í sjálfu sér fyrir heilbrigðisþjónustuna hver er í stjórn,“ segir Valgerður. Stjórnarmenn eigi að styðja við meðferðina og starfsfólk sem þar vinnur. Valgerður segir að sú stjórn sem nú sitji hafi gert hið gagnstæða. „Hún hefur sýnt mikið þekkingarleysi og ábyrgðarleysi á heilbrigðisþjónustu SÁÁ og þeim sem þar vinna með því að ýta út forstjóra, faglegum yfirmanni, 5. águst þrátt fyrir mikil mótmæli fagstjórnenda og annarra starfsmanna.“ „Þau reyndu ekki að bæta fyrir það þegar ljóst var hvaða afleiðingar það hefði á meðferðina. Í framhaldi héldu þau til streitu að ráða inn yfirmann sem enga þekkingu hefur á þeirri sérhæfðu starfsemi sem SÁÁ sinnir. Það var þrátt fyrir beina ósk starfsmanna um annað. Auk þess hefur sitjandi félagastjórn sýnt starfsmönnum lítilsvirðingu og yfirgang á fundum og með viðbrögðum við áskorun um að víkja. Það er því ljóst að sitjandi stjórn hefur ekki traust starfsmanna sem hefur í raun verið miðboðið.“ Framkvæmdastjórn SÁÁ eigi ekki að hafa eftirlit með faglega starfinu Línurnar hafa verið skýrar varðandi afskipti af heilbrigðisþjónustunni að mati Valgerðar en þær túlkaðar með misjöfnum hætti. Stjórn SÁÁ hafi talið að hún eigi að fara með einhvers konar eftirlit með heilbrigðisþjónustunni sem fjármögnuð er af Sjúkratryggingum. Formaður SÁÁ vísar því á bug að hún eða stjórnin hafi sýnt óeðlileg afskipti. „Þau eru að vísa í lög félagasamtakanna eða samþykktir þeirra, ekki landslög eða neitt svoleiðis. Það er ekki þannig að þeir eigi að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu, það eru aðrir,“ segir Valgerður. Það komi í hlut landlæknis og Sjúkratrygginga. „Auðvitað vill maður að regnhlífin SÁÁ sé stuðningur við meðferðina og treysti því að þeir sem séu að vinna þar séu að gera sitt besta. Auðvitað eiga þeir að vera með eftirlit með samningum og stóru myndinni og það er ekkert óeðlilegt og það verður áfram.“ Eigi að treysta starfsfólkinu Valgerður bindur vonir við að SÁÁ og yfirvöld séu nú að vinna saman að úrlausn sem báðir aðilar geti verið sáttir við. Hún snýr aftur til vinnu á föstudag og þurfti að stytta dvöl sína í Rotterdam þar sem hún var á ráðstefnu með fíknlæknum. „Það verður bara mjög gott að koma í vinnuna. Ég hlakka mikið til að hitta samstarfsfólkið mitt og sjúklingana. Það verður örugglega það besta sem kemur fyrir geðheilsuna mína núna, það er að fara aftur í vinnuna.“ „Ég vona að það komi líka aftur traust og stjórn SÁÁ treysti meðferðinni og fólkinu sem vinnur þar til þess að reka heilbrigðisþjónustuna því það er alveg full ástæða til að treysta því,“ segir Valgerður. Hún treysti því að allir leggist á eitt við að halda í reynslu, þekkingu og þá uppbyggingu sem hafi átt sér stað hjá SÁÁ síðustu ár. „Ég er með væntingar um að það finnist góð lausn fyrir heilbrigðisþjónustu SÁÁ þannig að hún fái að njóta sín áfram,“ segir Valgerður að lokum um borð í bát í hollensku hafnarborginni Rotterdam. Fréttin hefur verið uppfærð.
SÁÁ Tengdar fréttir „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir stöðuna innan SÁÁ mikil vonbrigði. Vonir hefðu verið bundnar við að átakasaga innan samtakanna væri að baki. Forstjóri Landspítalans og forstjóri SÁÁ funda um hvort og hvernig Landspítalinn geti stigið inn í deilurnar innan samtakanna sem hafa valdið ólgu í faglegu starfi síðustu vikur. 29. september 2026 12:00 Forstjórar leita lausna Forstjóri Landspítala og forstjóri SÁÁ funda um þessar mundir um hvort og hvernig Landspítalinn geti stigið inn í deilurnar innan samtakanna sem hafa valdið ólgu í faglegu starfi síðustu vikur. 29. september 2026 10:59 Segir upp eftir tvær vikur í starfi Jón Áki Jensson, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, hefur sagt upp starfi sínu. Jón var ráðinn tímabundið í stöðuna fyrir um tveimur vikum síðan eftir að Valgerður Rúnarsdóttir hætti störfum í kjölfar deilna innan félagsins. 29. september 2026 08:32 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Sjá meira
„Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir stöðuna innan SÁÁ mikil vonbrigði. Vonir hefðu verið bundnar við að átakasaga innan samtakanna væri að baki. Forstjóri Landspítalans og forstjóri SÁÁ funda um hvort og hvernig Landspítalinn geti stigið inn í deilurnar innan samtakanna sem hafa valdið ólgu í faglegu starfi síðustu vikur. 29. september 2026 12:00
Forstjórar leita lausna Forstjóri Landspítala og forstjóri SÁÁ funda um þessar mundir um hvort og hvernig Landspítalinn geti stigið inn í deilurnar innan samtakanna sem hafa valdið ólgu í faglegu starfi síðustu vikur. 29. september 2026 10:59
Segir upp eftir tvær vikur í starfi Jón Áki Jensson, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, hefur sagt upp starfi sínu. Jón var ráðinn tímabundið í stöðuna fyrir um tveimur vikum síðan eftir að Valgerður Rúnarsdóttir hætti störfum í kjölfar deilna innan félagsins. 29. september 2026 08:32