Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kristján Már Unnarsson skrifar 29. september 2026 16:00 Fyrirhuguð stálbogabrú yfir Djúpafjörð við norðanverðan Breiðafjörð. Ofarlega til vinstri opnast Þorskafjörður. Vegagerðin Lokaáfangi Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í uppnámi eftir að tilboð reyndust himinhátt yfir áætluðum verktakakostnaði. Aðeins tvö tilboð bárust, það lægra frá ÞG-verktökum upp á liðlega 3.888 milljónir króna. Það er um sextíu prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á tæplega 2.432 milljónir króna. Lægra boðið er þannig nærri 1.457 milljónum króna yfir áætluðum kostnaði. „
Þetta eru auðvitað vonbrigði,“ voru fyrstu viðbrögð Bergþóru Þorkelsdóttur vegamálastjóra en tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni klukkan 14 í dag. Hærra tilboðið barst frá Ístaki, upp á 5.992 milljónir króna. Það var 2.104 milljónum króna, eða 146 prósentum, yfir áætluðum verktakakostnaði. Brúin sýnd að vetrarlagi. Hún verður hluti Vestfjarðavegar.Vegagerðin Þegar slík staða kemur upp, að tilboð reynast verulega yfir kostnaðaráætlun, hefur það stundum gerst að öllum tilboðum sé hafnað og verkið boðið út að nýju. En gæti það gerst núna? „Ég veit það ekki. Við eigum eftir að fara yfir þetta og einnig ræða við lægstbjóðanda og sjá á hverju þetta byggir,“ sagði Bergþóra og tók fram að hún væri bara rétt búin að sjá tölurnar. Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri.Arnar Halldórsson „Þetta er hrikalega hátt yfir og ekki það sem við áttum von á,“ sagði hún. Þessi lokaáfangi endurnýjunar Vestfjarðavegar um Gufudalssveit felst í byggingu 210 metra langrar stálbogabrúar yfir Djúpafjörð sem og lagningu 4,6 kílómetra vegarkafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Áður er búið að leggja vegfyllingar út í firðina og hefja smíði tveggja annarra brúa yfir firðina. Brúin yfir Djúpafjörð verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt síðasti áfangi í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi, sem snerist um Teigsskóg. Fjallað var um verkefnið og brúargerðina í þessari sjónvarpsfrétt Sýnar fyrir sex mánuðum: Samkvæmt útboðsauglýsingu Vegagerðarinnar eru verklok áætluð þann 1. október 2028, eftir tvö ár. Opnun tilboða var hins vegar þrívegis seinkað í sumar þar til nú. Vegagerðin tekur fram að opnunarskýrsla feli ekki í sér niðurstöðu útboðs. Í opnunarskýrslu sé einungis birt heildartilboðsfjárhæð en endanlegt val geti ráðist af fleiri valforsendum samkvæmt útboðsgögnum. Framsetning opnunarskýrslu sé með fyrirvara um hugsanlega reiknivillu og að ekki sé búið að meta gildi tilboða. Komi í ljós að fjárhæðir í opnunarskýrslu séu ekki réttar miðað við framsetningu tilboðsblaðs og leiðbeiningar um útfyllingu á því, verði leiðrétt opnunarskýrsla birt eins fljótt og unnt er. Hér má sjá örstutt myndskeið Vegagerðarinnar af fyrirhugaðri Djúpafjarðarbrú:
Vegagerð Teigsskógur Samgöngumál Samgönguáætlun Reykhólahreppur Tengdar fréttir Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028. 11. júní 2026 11:36 Vegfarendur verða að þola Ódrjúgshálsinn enn lengur Opnun nýs Vestfjarðavegar um Gufudalssveit seinkar enn og tilkynnti Vegagerðin í dag að brýrnar yfir Djúpafjörð og Gufufjörð, sem leysa eiga af Ódrjúgsháls, yrðu ekki tilbúnar fyrr en í árslok 2028. 12. maí 2026 20:31 Umferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð. Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. 30. nóvember 2023 21:00 Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. 25. október 2023 22:22 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira
Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028. 11. júní 2026 11:36
Vegfarendur verða að þola Ódrjúgshálsinn enn lengur Opnun nýs Vestfjarðavegar um Gufudalssveit seinkar enn og tilkynnti Vegagerðin í dag að brýrnar yfir Djúpafjörð og Gufufjörð, sem leysa eiga af Ódrjúgsháls, yrðu ekki tilbúnar fyrr en í árslok 2028. 12. maí 2026 20:31
Umferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð. Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. 30. nóvember 2023 21:00
Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. 25. október 2023 22:22