Segir upp eftir tvær vikur í starfi Tómas Arnar Þorláksson skrifar 29. september 2026 08:32 Sjúkrahúsið Vogur. vísir/vilhelm Jón Áki Jensson, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, hefur sagt upp starfi sínu. Jón var ráðinn tímabundið í stöðuna fyrir um tveimur vikum síðan eftir að Valgerður Rúnarsdóttir hætti störfum í kjölfar deilna innan félagsins.
Þetta staðfestir Jón í samtali við Ríkisútvarpið. Mikil ólga hefur ríkt innan SÁÁ undanfarna mánuði og hafa ýmsir stjórnendur sagt starfi sínu lausu og gagnrýnt stjórn SÁÁ fyrir meint afskipti af faglegu starfi. Sjúkratryggingar og SÁÁ náðu á dögunum samkomulagi um að endurskoða samning sem var undirritaður á síðasta ári til að styrkja stjónarhætti og skapa skýrari umgjörð um heilbrigðisþjónustu sem félagið heldur úti. Jón segir í samtali við Rúv að önnur stofnun þurfi að stíga inn í til að bregðast við mönnunarvanda hjá samtökunum. Læknar vilji hafi ekki áhuga á því að stíga inn í deilurnar sem þar ríkja eins og stendur. Jón segir tíma sinn hjá samtökunum hafa verið vægast sagt krefjandi. „Grunnvandinn hefur verið sá að læknamönnun er verulega ábótavant og læknar almennt virðast ekki vilja eða hafa þor til að stíga inn í þessar deilur, þrátt fyrir að um viðkvæman hóp skjólstæðinga sé að ræða. Þeir möguleikar sem voru fyrir hendi voru ekki á þann hátt að mér þættu þeir fullnægjandi til að halda þjónustunni áfram í óbreyttu formi,“ er haft eftir honum í umfjöllun Rúv. Fyrr í þessum mánuði ætlaði embætti landlæknis að loka Vogi ef enginn sérfræðimenntaður lænir myndi gangast við faglegri ábyrgð á starfseminni innan tveggja daga. Þá steig Jón inn í. Jón muni nú vinna upp sinn upssagnarfrest og hefur fulla trú á að SÁÁ finni nýjan lækni innan þess tíma. Í Morgunblaðinu er haft eftir forstjóra Sjúkratrygginga Íslands, að það sé túlkunaratriði hvort framkvæmdastjórn SÁÁ hafi stigið of fast inn í hlutverk stjórnenda og fagmanna. Breytingar sem stefnt er að innan félagsins felist meðal annars í því að skipa þriggja til fimm manna stjórn yfir heilbrigðisþjónustunni sem verðu að meirihluta skipuð óháðum aðilum. Sjúkratrygginar Íslands og SÁÁ munu hafa samráð um skipunina.
SÁÁ Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira